Járn í fljótandi formi. Formúlan er sérhönnuð fyrir barnshafandi og mjólkandi mæður. Járnmixtúran er bragðbætt með bláberjum. Blue Iron Pregnancy er sérstaklega samsett fyrir barnshafandi konur með viðeigandi skammti af járni og C-vítamíni til að auka nýtingu og frásog járns. Járn er manneskjunni nauðsynlegt á flestum aldursskeiðum lífsins, sérstaklega barnshafandi konum og mæðrum með barn á brjósti. Járn dregur úr þreytu og slappleika og hefur mikilvægu hlutverki að gegna við frumuskiptingar. Blue Iron er einkaleyfa varið, ör-hjúpað form af járni og er milt fyrir magann. Blue Iron inniheldur engin litarefni og hentar fyrir grænkera (Vegan).
Hristið varlega fyrir notkun. Ráðlagður dagskammtur: 10 ml á dag fyrir fullorðna. Á meðgöngu getur verið nauðsynlegt að auka daglega inntöku járns. Slíkt ætti þó eingöngu að gera í samráði við ljósmóður eða lækni og undir eftirliti. Eftir opnun umbúða er síðasti neysludagur þremur mánuðum síðar.