Um okkur

Um okkur

Lyfjaver var stofnað 1998 af þeim Aðalsteini Steinþórssyni, Bessa Gíslasyni og Magnúsi Steinþórssyni. Lyfjaver er brautryðjandi tölvustýrðrar lyfjaskömmtunar (vélskömmtunar) en skömmtun hófst árið 1999.

Lyfjaver opnaði apótek árið 2002 í litlu rými við Suðurlandsbraut 22. Viðtökur á markaðnum voru strax fádæma góðar og streymdu viðskiptavinir í hið nýja apótek þó það væri á lítt áberandi stað og hvergi auglýst. Þó apótekið væri lítið upplifðu viðskiptavinir góða þjónustu og lægra verð en áður hafði þekkst á markaðnum. Apótekið sprengdi því fljótt utan af sér húsnæðið, á þeim tíma var stefna Lyfjavers að auglýsa ekki mikið heldur láta verkin tala. Tryggð viðskiptavina við fyrirtækið segir sína sögu.

Lyfjaver opnaði síðan eitt tæknivæddasta apótek Evrópu í janúar 2008 og er þetta eina apótekið á Íslandi sem notar nýjustu vélmennatækni við lagerhald og afgreiðslu lyfja. Notkun nýjustu tækni gerir okkur kleift að halda kostnaði í lágmarki og bjóða hagstætt lyfjaverð ásamt faglegri og persónulegri þjónustu.

Ein starfsstöð – þjónusta um land allt

Hjá Lyfjaveri starfa um 70 manns, þrátt fyrir að vera einungis staðsett á einni starfsstöð, á Suðurlandsbraut 22 í Reykjavík, þjónustar Lyfjaver einstaklinga og stofnanir um land allt. Einstaklingar um land allt hafa sótt í þjónustu Lyfjavers einkum vegna lágs lyfja-og vöruverðs og góðrar þjónustu, Lyfjaver sendir lyfjaskammtanir, önnur lyf og almennar vörur landshorna á milli. Í dag er bæði rekin stór verslun í apóteki okkar ásamt því að heilsuvöruverslunin Heilsuver býður upp á gott úrval af fæðubótarefnum, matvöru og heilsutengdum vörum. Að auki rekur Lyfjaver heildsölu og dreifingarfyrirtæki sem styður við aðrar einingar Lyfjavers. 

Netapótek Lyfjavers-Heimsendingar á lyfjum og öðrum vörum

Lyfjaver hefur til fjölda ára sent viðskiptavinum sínum lyf heim gegn lyfseðli og eru ánægðir viðskiptavinir um land allt. Það var svo árið 2020 sem bylting varð í þeirri þjónustu þegar Lyfjaver opnaði Netapótek Lyfjavers sem er háþróuð netverslun með lyf og aðrar vörur þar sem viðskiptavinir geta skráð sig inn með rafrænum skilríkjum, séð þá lyfseðla sem þeir eiga, valið lyf og samheitalyf í boði og fengið strax verðupplýsingar með greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga. Hægt er að kaupa öll lausasölulyf í Netapóteki Lyfjavers ásamt miklum fjölda af almennum vörum. Greitt er fyrir vörurnar með öruggri greiðslu.

Leiðandi í lágu lyfjaverði

Lyfjaver er leiðandi í lágu lyfjaverði og hefur síðan 2005 oftast mælst með lægsta verðið í verðkönnunum ASÍ og fleiri aðila. Með öflugum samhliða innflutningi lyfja og með því að nota ávallt nýjustu og bestu tækni hefur okkur tekist að standa vörð um lágt lyfjaverð til neytenda.

Það er stefna Lyfjavers að bjóða viðskiptavinum sínum ávallt upp á ódýrustu lyfin á markaðnum á hverjum tíma.

Lyfjaver er sjálfstætt fyrirtæki í samkeppni við önnur apótek og heilsubúðir á markaðnum og er ekki hluti af keðju lyfjaverslan

contact figure
Sendu okkur línu

Takk fyrir að hafa samband

Við munum svara beiðni þinni eins fljótt og kostur er

Get ég aðstoðað?

Contact icon