Til baka

SureSign Iron Deficiency test

Suresign ferritin sjálfspróf til ákvörðunar á járnskorti er hraðvirkt próf til þáttagreiningar á ferritíni í blóði úr fingri vegna blóðleysis af völdum járnskorts. Blóðleysi vegna járnskorts er algengt hjá börnum og konum á öllum aldri en aðallega hjá konum sem...

2.403 kr.

vnr: 19000086

Suresign ferritin sjálfspróf til ákvörðunar á járnskorti er hraðvirkt próf til þáttagreiningar
á ferritíni í blóði úr fingri vegna blóðleysis af völdum járnskorts. Blóðleysi vegna járnskorts er algengt hjá börnum og konum á öllum aldri en aðallega hjá konum sem enn hafa blæðingar (að minnsta kosti 20% þjást af járnskorti). Helstu einkenni eru fölvi, þreyta, höfuðverkur, hraðari hjartsláttur eða mæði við líkamsrækt.

Einkenni geta birst smátt og smátt og stundum er ekki tekið eftir þeim.
Vinsamlegast lesið fylgiseðilinn vandlega áður en prófið er framkvæmt og fylgið
leiðbeiningum skref fyrir skref. Ef leiðbeiningum er ekki fylgt getur það valdið röngum
niðurstöðum. Sjá nánar um takmarkanir í fylgiseðli.

Framkvæmd prófsins er auðveld. Tekinn er blóðdropi úr fingurgómi löngutangar eða
baugfingurs. Blóðdropinn er dreginn upp í dropateljara og buffer blandað saman við
áður en dropinn er settur á prófspjaldið.
Beðið er eftir að lituð lína birtist á prófspjaldinu. Bíðið þar til litaða línan/línurnar birtast.
Lesið niðurstöður eftir 5 mín. Ekki skal lesa niðurstöður eftir meira en 10 mínútur.

Hvernig virka ferritínpróf?
Ferritín er prótein sem er aðalgeymsluform járns í frumum. Óeðlileg niðurstaða þýðir að
styrkur ferritíns í blóði er lægri en 30 ng/mL og bendir það til mögulegs járnskorts.

Það sem fylgir prófinu:
Prófspjald, dropateljari, buffer, alkóhólþurrka, lansett nál, og fylgiseðill.
Ath.
Suresign ferritín sjálfsprófið til ákvörðunar á járnskorti gefur aðeins þáttagreinandi
niðurstöður sem benda til ferritínsskorts. Framkvæma verður aðra mælingu með annarri
aðferð til þess að staðfesta niðurstöðuna.