Til baka

Suresign Þungunarpróf 1 stautur

Þungunarpróf sem mælir styrk þungunarhormóns (hCG) í þvagi og þar með hvort þungun hafi átt sér stað með 99% nákvæmni. Niðurstöður fást á um 3 mínútum. Einfalt í notkun og aflestri. Hentugt þar sem hægt er að taka prófið á...

789 kr.

vnr: 88018898

Þungunarpróf sem mælir styrk þungunarhormóns (hCG) í þvagi og þar með hvort þungun hafi átt sér stað með 99% nákvæmni. Niðurstöður fást á um 3 mínútum. Einfalt í notkun og aflestri. Hentugt þar sem hægt er að taka prófið á öllum tímum sólarhrings en morgunþvagið gefur oft skýrasta niðurstöðu. Íslenskar leiðbeiningar fylgja.

1. Takið prófið úr innsigluðu umbúðunum.
2. Fjarlægið hlífina af prófstautnum.
3. Snúið prófinu þannig að gluggarnir vísi upp.
4. Haldið prófstautnum í þvagbununni í um 3 sekúndur eða dýfið í þvagsýni í 10 sekúndur.
Best er að nota miðbunuþvag.
5. Setjið hlífina aftur á og leggið prófið á slétt yfirborð þannig að gluggarnir vísi upp.
6. Bíðið í 3 mínútur eftir niðurstöðum.
7. Niðurstöður geta verið ónákvæmar eftir meira en 15 mínútur.