Til baka

SureSign Vítamín D Deficiency test

Suresign D-vítamín hraðpróf er hraðvirk ónæmisgreining með litskiljun til ákvörðunar á magni 25-hýdroxý-D-vítamíni í blóðdropa úr fingri. Þetta próf gefur forniðurstöður sem hægt er að nota til þess að skima fyrir D-vítamínskorti. Heilsufarsáhætta vegna D-vítamínskorts er mun alvarlegri en áður...

3.056 kr.

vnr: 19000087

Suresign D-vítamín hraðpróf er hraðvirk ónæmisgreining með litskiljun til ákvörðunar á magni 25-hýdroxý-D-vítamíni í blóðdropa úr fingri. Þetta próf gefur forniðurstöður sem
hægt er að nota til þess að skima fyrir D-vítamínskorti. Heilsufarsáhætta vegna D-vítamínskorts er mun alvarlegri en áður var haldið. D- vítamínskortur getur tengst ýmsum alvarlegum sjúkdómum eins og beinþynningu, beinkröm, heila og mænusiggi (MS), hjarta- og æðasjúkdómum, fylgikvillum á meðgöngu, sykursýki, þunglyndi, heilablóðfalli, sjálfsofnæmissjúkdómum, flensu, mismunandi tegundum krabbameins, smitsjúkdómum, Alzheimer sjúkdómi, offitu, hærri dánartíðni og fleiri sjúkdómum.

Vinsamlegast lesið fylgiseðilinn vandlega áður en prófið er framkvæmt og fylgið
leiðbeiningum skref fyrir skref. Ef leiðbeiningum er ekki fylgt getur það valdið röngum
niðurstöðum. Sjá nánar um takmarkanir í fylgiseðli.

Framkvæmd prófsins er auðveld. tekinn er blóðdropi úr fingurgómi löngutangar eða
baugfingurs. Blóðdropinn er dreginn upp í dropateljara og buffer er blandað saman við
áður en dropinn er settur á prófspjald.
Lesa skal niðurstöður eftir 10 mínútur en þá er T-línan borin saman við „D-vítamín
litaspjaldið“ sem fylgir með prófinu svo hægt sé að vita D-vítamín styrk blóðsins. Ekki skal
lesa niðurstöður eftir meira en 20 mín.

Hvernig virkar D-vítamínprófið?
25-hýdroxý-D-vítamín er helsta geymsluform D-vítamíns í líkamanum. Því er hægt að
ákvarða heildarstöðu D-vítamíns með því að greina styrk 25-hýdroxý-D-vítamíns. Sé
styrkur 25- hýdroxý-D-vítamín undir 30 ng/mL, er um jákvæða niðurstöðu að ræða og
gefur til kynna D-vítamínskort eða D vítamínstyrk í neðri mörkum. Í þessum tilfellum er
mælt með fæðubótarefnum sem innihalda D vítamín.

Það sem fylgir prófinu:
Prófspjald, buffer/jafni, lansett nál, alkóhólþurrka, dropateljari, fylgiseðill og litaspjald.
Ath.
Hraðpróf til ákvörðunar á D-vítamíni gefur aðeins nálgun á styrk D-vítamíns í blóði. Því er
nauðsynlegt að staðfesta niðurstöðuna með annarri greiningaraðferð.