Til baka

Strefen Honung & Citron

16,2 mg/ml - 15 ml - Munnholsúði

Strefen munnúði gegn bólgu og verkjum í hálsi. Strefen er notað sem skammtímameðferð til að draga úr einkennum bráðra hálssærinda hjá fullorðnum. Einungis til skammtímanotkunar í munnhol.

5.052 kr.

vnr: 160201

Strefen munnúði gegn bólgu og verkjum í hálsi.

Strefen er notað sem skammtímameðferð til að draga úr einkennum bráðra hálssærinda hjá fullorðnum.

Einungis til skammtímanotkunar í munnhol.

Fullorðnir 18 ára og eldri:
Einn skammtur (3 úðaskammtar) aftast í hálsinn á 3-6 klst. fresti eftir þörfum, upp að hámarki 5 skammtar á 24 klst. tímabili.

Ekki skal anda inn á meðan úðað er.

Ráðlagt er að nota lyfið að hámarki í þrjá daga.

Áður en lyfið er notað í fyrsta skipti skal virkja dæluna með því að beina stútnum frá líkamanum og úða að lágmarki 4 sinnum þar til fínn, samfelldur úði myndast. Þá er undirbúningi lokið og dælan tilbúin til notkunar.

Fyrir hvern skammt á að beina stútnum frá líkamanum og úða að minnsta kosti einu sinni til að tryggja að fínn, samfelldur úði myndist. Alltaf skal tryggja að fínn, samfelldur úði myndist áður en lyfið er notað.

Börn
Ekki hefur verið sýnt fram á öryggi og verkun Strefen hjá börnum eða unglingum yngri en 18 ára.

Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.

Virka innihaldsefnið er flurbiprofen. Flurbiprofen tilheyrir flokki lyfja sem kallast bólgueyðandi gigtarlyf
(NSAID), sem verka með því að breyta því hvernig líkaminn bregst við sársauka, bólgu og hita.

Frekari upplýsingar

Form

Styrkur

Magn

Heiti Innihaldsefnis

Merking