Rosonia Froða
3.390 kr.
Rosonia™ er einstaklega mjúk froða sem hentar vel á viðkvæmt kynfærasvæði kvenna. Hún er ætluð til staðbundinnar meðferðar við óþægindum (kláða, sviða, ertingu), bólgum og sárum á kynfærasvæði kvenna.
Rosonia™ myndar varnarhimnu yfir viðkomandi svæði sem verndar það frá ertandi efnum og árásum örvera úr umhverfinu. Froðuna má því einnig nota fyrirbyggjandi ásamt því að vera góð viðbótarmeðferð með lyfjum gegn bakteríu-,sveppa- og veirusýkingum. Rosonia myndar kjöraðstæður fyrir slímhúðina að gróa og endurnýja sig.
Rosonia™ er margprófuð og sýna niðurstöður klínískra og forklínískra rannsókna að varan minnkar verulega bólgur, sviða, kláða og einnig rispur og sprungur á kynfærum. Rannsóknir hafa meðal annars sýnt að Rosonia hentar vel konum sem hafa lichen sclerosis.
Fróðleikur um Rosonia
Fyrir notkun skal þvo bæði hendur og kynfærasvæði og þurrka vel. Flaskan er hrist vel fyrir notkun og haldið í uppréttri stöðu við notkun. Þunnt lag af froðu er borið á ytra kynfærasvæði og nuddað þar til þurrt, froðan er ekki þvegin af. Meðferðina má endurtaka einu sinni eða oftar fyrir daginn í allt að 10 daga eða þar til að fullur bati hefur náðst. Aukaverkanir: vægur sviði sem hverfur oftast þegar líður á meðferðina (tíðni < 10%). Engar þekktar milliverkanir eru við lyf.
TIAB efnasamband, hýalúrónsýra, skógarstokksrós
TIAB er einstakt efnasamband myndað úr silfurjónum* tengdum títaníumdíoxíð míkrókristöllum. Það myndar örverudrepandi varnarhjúp yfir viðkomandi svæði sem veitir vörn gegn örverum og ertandi efnum. Hjúpurinn veitir kjöraðstæður fyrir slímhúðina að gróa og endurnýja nýja sig.
Malva sylvestris jurtaútdráttur úr skógarstokksrós minnkar bólgur, eykur þéttni og teygjaleika húðar ásamt því að veita róa, sefa og mýkja slímhúðina.
Hýalúrónsýra er rakagjafi ásamt því að styðja við myndun varnarhjúpsins.
*Rannsóknir sýna að silfurjónir í TIAB sambandinu frásogast ekki um húð, hvorki heila húð né rofna. Varan inniheldur 0.005% míkrósilfurjónir.
Þú gætir haft áhuga á…
Tengdar vörur
Gum Paroex Gel 0,12% 75ml
Paroex vörulínan inniheldur vörur sem eru b... Verð: 1.411 kr.Femarelle Unstoppable 60+ 56hylki
Femarelle® Unstoppable er fæðubótarefni fyri... Verð: 3.750 kr.Betulic 100 stk
Birkilauf hefur lengi verið notað í þeim til... Verð: 3.666 kr.Chello Forte Rauður 60töflur
Hita- og svitakóf er óhjákvæmilegur fylgifis... Verð: 3.624 kr.