Til baka

Minifom

30 ml - Dropar

Minifom er notað við ungbarnakveisu. Minifom verkar beint á loftið í þörmunum og er ekki tekið upp í líkamanum. Full verkun lyfsins næst ekki fyrr en eftir nokkurra daga meðferð. Síðan er meðferð haldið áfram án hléa. Droparnir minnka yfirborðsspennu...

2.858 kr.

vnr: 036541

Minifom er notað við ungbarnakveisu. Minifom verkar beint á loftið í þörmunum og er ekki tekið upp í líkamanum. Full verkun lyfsins næst ekki fyrr en eftir nokkurra daga meðferð. Síðan er meðferð haldið áfram án hléa. Droparnir minnka yfirborðsspennu við magaspeglun og röntgenrannsóknir með skuggaefni. Það veldur því að froða í maganum og ristli brotnar niður, loftbólur hverfa og skyggnið í rannsókninni verður betra.

Notaðu lyfið alltaf eins og læknirinn hefur sagt til um. Ef þú ert ekki viss um hvernig á að nota lyfið leitaðu þá upplýsinga hjá lækninum eða lyfjafræðingi. Venjulegur skammtur við ungbarnakveisu er 10 dropar gefnir með skeið rétt fyrir hverja máltíð (10 dropar = 0,3 ml). Hristið flöskuna vel fyrir notkun. Ef enginn bati fæst eftir tveggja til þriggja daga notkun, skal hafa samband við lækni.

Frekari upplýsingar

Form

Magn

Heiti Innihaldsefnis

Merking