Til baka

BlueIron Járn fljótandi Pregnancy 250ml

Járn í fljótandi formi sérhannað fyrir barnshafandi og mjólkandi mæður

2.049 kr.

2.049 kr.

vnr: 88042780
Járn í fljótandi formi. Formúlan er sérhönnuð fyrir barnshafandi og mjólkandi mæður. Járnmixtúran er bragðbætt með bláberjum. Blue Iron Pregnancy er sérstaklega samsett fyrir barnshafandi konur með viðeigandi skammti af járni og C-vítamíni til að auka nýtingu og frásog járns. Járn er manneskjunni nauðsynlegt á flestum aldursskeiðum lífsins, sérstaklega barnshafandi konum og mæðrum með barn á brjósti. Járn dregur úr þreytu og slappleika og hefur mikilvægu hlutverki að gegna við frumuskiptingar.  Blue Iron er einkaleyfa varið, ör-hjúpað form af járni og er milt fyrir magann. Blue Iron inniheldur engin litarefni og hentar fyrir grænkera (Vegan).
Hristið varlega fyrir notkun. Ráðlagður dagskammtur: 10 ml á dag fyrir fullorðna. Á meðgöngu getur verið nauðsynlegt að auka daglega inntöku járns. Slíkt ætti þó eingöngu að gera í samráði við ljósmóður eða lækni og undir eftirliti. Eftir opnun umbúða er síðasti neysludagur þremur mánuðum síðar.
Næring pr. 10ml skammt. Járn 25 mg (167% RDS), C vítamín 40 mg ( 47% RDS), B12-vítamín 5mcg (250% RDS), Fólinsýra 400 mcg (80%).  Inniheldur:  Vatn, peruþykkni, járn III lækkað (Ferric Saccharate complex), náttúrulegt bláberjaþykkni. C-vítamín (askorbínsýra), B12 vítamín (sýanókóbalamín), fólinsýra, bláberjailmur. Sýrustillir: Sítrónusýra. Þykkir: Xanthan gúmmí. Rotvarnarefni: Kalíumsorbat.