Kaupskilmálar

Kaupskilmálar

1. Skilmálar

Skilmálar þessir gilda um kaup á vöru eða þjónustu á vefsvæðinu www.lyfjaver.is. Eigandi lyfjaver.is er Lyfjaver ehf., kt. 550998-2039, Suðurlandsbraut 22, 108 Reykjavík, hér eftir nefnt Lyfjaver.
Skilmálarnir skilgreina réttindi og skyldur Lyfjavers annars vegar og kaupanda vöru eða þjónustu hins vegar. Skilmálarnir eru samþykktir með staðfestingu á kaupum og greiðslu fyrir viðskiptin. Öll viðskipti eru trúnaðarmál og tryggjum við okkar viðskiptavinum, örugg viðskiptinu á netinu.

2. Skilgreiningar

Seljandi er Lyfjaver ehf., kt. 550998-2039. Kaupandi er sá aðili sem skráður er sem kaupandi á reikningi. Kaupandi verður að vera a.m.k. 18 ára.

3. Skilaréttur

Lyfjaver skuldbindur sig til að afhenda kaupanda vöru eða þjónustu fyrir kaupum í samræmi við skilmála þessa og gildandi rétt.

Almennur skilafrestur á vörum er 30 dagar. Ef 30 dagar eru liðnir frá kaupum á vöru er ekki boðið upp á endurgreiðslu eða vöruskipti.

Aðeins er tekið við vörum í óopnuðum umbúðum og í sama ásigkomulagi og þær voru við afhendingu. Lyfjum er almennt ekki hægt að skila né fást þau endurgreidd nema um mistök af hálfu Lyfjavers sé að ræða. Að öðru leyti gilda lög og reglur um afgreiðslu og afhendingu Lyfja [vitna í reglugerð].

Ef til endurgreiðslu kemur innan 30 daga frá kaupum, mun Lyfjaver endurgreiða kaupanda vöruna á sama hátt og viðskiptavinur greiddi fyrir hana - þ.e. með bakfærslu á kreditkorti eða innleggi á bankareikning viðskiptavinar ef um staðgreiðslu var að ræða.

Kostnaður við endursendingu er á ábyrgð kaupanda. Ef vara reynist gölluð eða vegna rangrar afgreiðslu greiðir Lyfjaver fyrir endursendingu.

4. Sendingarkostnaður

Sendingarkostnaður leggst ofan á vöru áður en gengið er frá greiðslu og ræðst af eðli og umfangi viðskipta.

Sendingar með Lyfjavers skutlunni

Heimsending með Lyfjavers skutlunni: 1.499 kr. Gildir á höfuðborgarsvæðinu.
Ef verslað er fyrir meira en 9.900 kr. eða ef tveir lyfseðlar eru pantaðir fellur sendingargjald niður.

Sendingar með Póstinum

Pakki heim: 1.499 kr.
Pakki á pósthús eða í Póstbox: 990 kr.
Ef verslað er fyrir meira en 9.900 kr. eða ef tveir lyfseðlar eru pantaðir fellur sendingargjald niður.

Dropp: -0 kr.

5. Afhendingartími

Sendingar með Lyfjavers skutlunni

Pantanir á Höfuðborgarsvæðinu sem berast fyrir kl 12 virka daga er hægt að fá sendar heim samdægurs á Höfuðborgarsvæðinu (á ekki við póstnúmer 116). Kostnaður er samkvæmt verðskrá.

Sendingar með Póstinum:

Afhendingartími er að jafnaði 1-3 virkir dagar eftir að pöntun berst og greiðsla hefur átt sér stað. Pöntun þarf að berast fyrir kl 13 virka daga til að ná með Póstinum sama dag.

Sendingar með Dropp:

Höfuðborgarsvæðið

  • Pantanir sem eru gerðar fyrir kl. 12:00 eru tilbúnar til afhendingar sama dag eftir kl. 16:00
  • Pantanir sem eru gerðar eftir kl. 12:00 eru tilbúnar til afhendingar næsta dag eftir kl. 16:00

Landsbyggð

  • Afgreiðslutími pantana er 1 - 2 virkir dagar

Dropp sendir SMS á farsímanúmer sem skráð er í pöntunarferlinu þegar pöntun er tilbúin til afhendingar. -0 kr.

Sótt í apótek:

Pantanir eru afgreiddar á opnunartíma apóteksins virka daga 8:30 – 18:00 og laugardaga 10:00 – 14:00. Pöntun þarf að berast í tæka tíð fyrir lokun.

6. Verð og verðbreytingar

Öll verð eru gefin upp í íslenskum krónum með virðisaukaskatti og birt með fyrirvara um innsláttarvillur. Lyfjaver áskilur sér rétt til að ljúka ekki viðskiptum hafi rangt verð verið gefið upp. Verðbreytingar geta orðið fyrirvaralaust t.d. vegna rangra upplýsinga eða villu í skráningu. Verðbreytingar sem gerðar eru eftir að pöntun er staðfest eru ekki afturvirkar nema í ljós komi að um innsláttarvillu eða ranga skráningu hafi verið að ræða.

Ef vara sem pöntuð hefur verið reynist ekki til á lager, upplýsum við viðskiptavini okkar um það og bjóðum að senda vöruna þegar hún verður fáanleg að nýju. Ef pöntuð vara verður ekki til á lager á næstunni (innan 30 daga) mun Lyfjaver endurgreiða viðskiptavini pöntunina að fullu hafi greiðsla þegar farið fram.

7. Persónuvernd

Seljandi fer meðhöndlar allar upplýsingar sem trúnaðarmál og eru þær eingöngu nýttar til þeirra viðskipta sem þær eru gefnar fyrir. Að öðru leyti vísast til upplýsinga um meðferð persónuupplýsinga og persónuvernd á heimasíðu Lyfjavers.

8. Öryggi

Lyfjaver tryggir greiðsluöryggi eins og frekast er kostur á hverjum tíma. Allar greiðslur með greiðslukortum fara í gegnum örugga greiðslugátt Kortu hf.

9. Greiðslumöguleikar

Í Netapóteki Lyfjavers er boðið upp á að greiða með öllum helstu kredit- og debetkortum. Greiðslur fara í gegnum örugga greiðslugátt Valitor hf.

Netgíró: Kaupandi samþykkir að nota þjónustu Netgíró. Frekari upplýsingar um virkni þjónustunnar má finna á netgiro.is.

Pei greiðsluleið: Kaupandi samþykkir að nota þjónustu Pei sem er  í eigu Greiðslumiðlunar ehf. Frekari upplýsingar um virkni þjónustunnar má finna á pei.is

10. Varnarþing

Þessir skilmálar er samræmast íslenskum lögum. Rísi mál vegna þeirra skal það rekið fyrir íslenskum dómstólum.

11. Um Lyfjaver

Lyfjaver ehf
Suðurlandsbraut 22
108 Reykjavík

Sími: 533-6100
Netfang: [email protected]
VSK nr: 59716
Kt: 550998-2039

contact figure
Sendu okkur línu

Takk fyrir að hafa samband

Við munum svara beiðni þinni eins fljótt og kostur er

Get ég aðstoðað?

Contact icon