Til baka

Swanson MCT Pure 1000MG 90 hylki

MCT olían hefur lengi verið vinsæl hjá íþróttafólki vegna skjótrar orku sem hún veitir líkamanum. Swanson kynnir MCT Pure úr kókosolíu þar sem nánast öll laurínsýran hefur verið fjarlægð og hver skammtur inniheldur að lágmarki 500 mg af kaprílsýru og 340 mg af kaprínsýru.  

3.890 kr.

vnr: 88034537

Aðalfitusýrurnar sem er að finna í MCT olíu eru laurínsýra, kaprínsýra og kaprýlsýra (lauric acid, capric acid and caprylic acid), þar sem laurínsýra er ríflega helmingur heildarmagns fitusýranna í MCT olíu. Hinsvegar er heilsueflandi eiginleika MCT olíunnar aðallega að finna í kaprínsýrunni og kaprýlsýrunni. Ástæðan er einföld laurínsýra er langkeðju þríglýseríð  (long-chain triglyceride) og lifrin okkar þarf að vinna úr henni áður en líkaminn getur nýtt sér kosti hennar og er hún því ekki fýsilegur kostur ef þú leitar að skjótri orku. Swanson hefur því framleitt MCT Pure úr kókosolíu þar sem nánast öll laurínsýran hefur verið fjarlægð og hver skammtur inniheldur að lágmarki 500 mg af kaprílsýru og 340 mg af kaprínsýru.

MCT olían hefur lengi verið vinsæl hjá íþróttafólki vegna skjótrar orku sem hún veitir líkamanum.

1 perla 3 sinnum á dag með máltíð og vatni

Other ingredients: Gelatin, glycerin, purified water.

Contains tree nuts (coconut).