Til baka

Nordaid Sleep Aid Melatónin munnúði 30ml

 Bragðgóður munnúði sem frásogast og nýtist hratt og vel • Einfalt og þæginlegt • 200 dagskammtar – 30ml • Vegan • Aðeins fyrir fullorðna

2.590 kr.

2.590 kr.

vnr: 56001025

Góður svefn er nauðsynlegur þáttur í lífi allra einstaklinga og ekki síst mikilvægur til að viðhalda eðlilegri líkamstarfsemi og góðri heilsu. Ef við fáum ekki nægan svefn getur það valdið vanlíðan og aukið hættu á ýmsum kvillum sérstaklega ef um langvarandi svefnleysi er að ræða. Ástæður svefntruflana geta verið af ýmsum ástæðum. Einstaklingar geta verið að glíma við tímabundið

eða langvarandi svefnleysi.

Tímabundið svefnleysi getur verið af völdum t.d álags, sjúkdóma, verkja, kvíða eða áhyggja eða vegna vaktavinnu, ferðalaga og eða breytinga á lífsmunstri. Svefntruflanir aukast með aldrinum og eru algengar meðal kvenna á breytingaskeiði. Sleep Aid er fyrir þá einstaklinga sem eiga í vandræðum með að festa svefn og eða þá sem oft vakna yfir nóttina eða með svefntruflanir.

Melatónín dregur úr tíma til að sofna. Gagnleg áhrif koma fram þegar 1 mg af melatóníni er neytt rétt fyrir svefn.

Þeir sem ferðast mikið finna gjarnan fyrir að svefnmynstur raskast. Til að fá fram jákvæð áhrif þarf lágmarksinntaka að vera 0,5 mg skömmu fyrir svefntíma á fyrsta degi ferðalags og nokkra næstu daga eftir að komið er til áfangastaðar

Ráðlagður dagskammtur:

Einn úði fyrir svefn undir tungu eða innan á kinnina

Einn úði inniheldur 1 mg. af Melatónín

Aðeins fyrir fullorðna einstaklinga

Þegar munnúðinn er notaður í fyrsta skipti er gott að ýta nokkrum sinnum á úðahausinn til að fá vökvann upp í rörið. Hristið glasið fyrir notkun. Úðið undir tunguna eða innan á kinnina.

Munið að setja hettuna á úðahausinn og geymið flöskuna þannig hún standi lóðrétt.Ef munnúðinn er ekki notaður í langan tíma, þá getur hann stíflast. Ef það gerist þá þarf að hreinsa úðahausinn með heitu vatni.

Fæðubótarefni kemur aldrei í staðinn fyrir fjölbreytt og gott mataræði. Varist að nota ekki meira en ráðlagður dagskammtur segir til. Geymist við stofuhita og ekki í sólarljósi.

1 mg. Melatónin

Að auki: Hreinsað vatn, glýseról, sítrónusafi, etanól, melatónín, stevía, akasíu gúmmí, xanthan gúmmí, piparmyntu og appelsínu ilmkjarnaolíur.

Er laktósa, glútein frítt og Vegan.