Til baka

Perspi Guard Maximum svitastoppari 50ml

Svitalykt og óþægileg líkamslykt er eitthvað sem við viljum vera laus við í okkar daglega amstri. Sumir glíma hins vegar við það vandamál að líkaminn framleiðir of mikinn svita (hyper hydrosis) og því fylgir oft á tíðum mjög sterk svitalykt....

3.622 kr.

vnr: 88025884

Svitalykt og óþægileg líkamslykt er eitthvað sem við viljum vera laus við í okkar daglega amstri. Sumir glíma hins vegar við það vandamál að líkaminn framleiðir of mikinn svita (hyper hydrosis) og því fylgir oft á tíðum mjög sterk svitalykt.

Perspi-Guard® Maximum 5™ er líkamssprey sem vinnur bug á erfiðistu tilfellum af óþægilegri líkamslykt. Helsti kostur þess er að einungis þarf að nota spreyið tvisvar sinnum í viku til að ná tilætluðum árangri.

Hvað er Perspi-Guard® Maximum 5™?
Perspi-Guard® Maximum 5™ er mjög sterkur svitalyktareyðir sem hannaður er til að koma í veg fyrir svita og svitalykt hjá einstaklingum með ofvirka svitakirtla (Hyper hydrosis). Maximum 5™ má nota á alla venjulega húð til að koma í veg fyrir vandamál sem tengjast miklum svita og svitalykt. Virkni Maximum 5™ er svo mikil að einungis þarf að nota efnið tvisvar í viku. Í mjög erfiðum tilfellum gæti þó reynst þörf á meiri notkun.

Notkunarleiðbeiningar: Berist á hreina og þurra húð einu sinni til tvisvar í viku. Tvö skipti á viku eiga að nægja til að viðhalda svita- og lyktarlausu ástandi. Til að ná bestum árangri skal úða á meðferðarsvæðið að kvöldi til áður en farið er að sofa. Þvoið svæðið sem bera skal á og þurrkið vel. Úðið í 2-3 skipti á meðferðarsvæðið og látið þorna. Þvoið ykkur eins og þið eruð vön daginn eftir, hvort sem farið er í sturtu eða þrifið með öðrum hætti. Má nota undir hendur, á hendur, á kálfa og á fætur. Notið ekki annan svitalyktareyði á sama tíma þar sem það gæti truflað meðferðina. Ef nauðsyn ber til, er mælt með því að nota lyktargefandi efni á aðra líkamshluta en þá sem úðaðir eru með Maximum 5™.