Paracet munndreifitöflur 250 mg 12 stk
2.106 kr.
Notað til að koma í veg fyrir fylgikvilla hás hita, langvarandi höfuðverkja og vöðva- og liðvandamála undir eftirliti læknis.Heiti: Paracet Virkt efni: Paracetamól Form: Munndreifitöflur Styrkur: 250 mg Magn: 12 stk. Merking: L Bragð: bananabragð
Paracet munndreifitöflur eru fyrir börn og fullorðna þyngri en 13 kg (eldri en 2 ára): Nota skal lægsta virka skammt og í eins stuttan tíma og hægt er. Ef nota þarf lyfið í lengri tíma en 3 daga eða ef einkenni versna skal hafa samband við lækni. Ekki gefa stærri skammta en ráðlagt er þar sem það eykur hættuna á alvarlegum lifrarskemmdum. Skammturinn fer eftir þyngd barnsins, miðað er við 15mg/kg allt að 4 sinnum á dag. Börn 13-25 kg (2-7 ára): 1 munndreifitafla mest 4 sinnum á sólarhring á 4-6 klst frest. Börn 26-39 kg (7-12 ára): 2 munndreifitöflur mest 4 sinnum á sólarhring á 4-6 klst frest . Hafa skal samband við lækni ef um háan hita er að ræða.. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánar á https://www.serlyfjaskra.is/lyf/paracet-ed578e90-becf-ed11-8120-005056a1b61b