Til baka

Lýsi Omega3 Liðamín

Omega 3 Liðamín Hyal-Joint® er samansett úr efnum sem talin eru hafa jákvæð áhrif á liðina og geta viðhaldið heilbrigði þeirra.

4.603 kr.

vnr: 5668

Óþægindi eða verkir frá liðum geta dregið úr hreyfigetu og almennum gæðum daglegs lífs þeirra sem þjást af þeim. Omega 3 Liðamín Hyal-Joint® er samansett eftirfarandi efnum:

Hyal-Joint® (hyaluronsýra)
Í liðamótum er að finna seigfljótandi vökva sem nefnist liðvökvi. Hlutverk hans er að smyrja og viðhalda mýkt í liðamótum.
Hyaluronsýra er ein af meginefnum liðvökva og hana er einnig að finna í brjóski.

Kondróitínsúlfat 
Kondróitínsúlfat (úr fiski) er eitt algengasta byggingarefnið í liðbrjóski. Í öllum liðum er liðbrjósk, sem er mýkra en bein og ásamt seigum liðvökvanum gefur það liðnum áreynslulausa mýkt.

Omega-3
Omega-3 forte er þykkni sem inniheldur meira magn af fitusýrunum EPA og DHA en aðrar Omega-3 vörur frá LÝSI. Fitusýrurnar eru okkur lífsnauðsynlegar sem þýðir að líkaminn getur ekki sjálfur framleitt þær. Þess vegna er mikilvægt að fá þær úr fæðu eða fæðubótarefnum.

Í Omega 3 Liðamín Hyal-Joint® er einnig C-vítamín sem hefur hlutverki að gegna í framleiðslu líkamans á kollageni. Kollagen er prótein sem er meginuppistaðan í ýmsum tengivefjum líkamans.

Omega 3 Liðamín Hyal-Joint® inniheldur ekki A- og D-vítamín og því er óhætt fyrir þá sem taka lýsi að nota Omega 3 Liðamín Hyal-Joint® á sama tíma.

1 Omega hylki og 2 liðamíntöflur á dag