Númer Eitt Karl 45+ Bætiefnabox 30skammtar
11.427 kr.
11.427 kr.
Fjölvítamín- og steinefnablanda með auka D-vítamíni og sínki, burnirót og sérvalinni jurtablöndu. Sérhönnuð fyrir karlmenn sem vilja halda í orkuna, styrkja varnir líkamans, huga að heilbrigði blöðruhálskirtils og hjarta og viðhalda eðlilegu magni testosteróns í blóðinu.
Næring beint úr náttúrunni sem líkaminn á auðvelt með að nýta. Laus við óþarfa aukefni. Þægilegir dagspakkar sem auðvelt er að taka með sér hvert sem er. Allt í einum pakka: bæði umhverfisvænna og hagkvæmara. Hver poki er 1 dagsskammtur sem inniheldur 5 töflur og hylki. Orka – jafnvægi – viðhald.
- Orka – vítamín, C-vítamín og magnesíum stuðla að eðlilegri orkumyndun og vinna gegn þreytu
- Hjarta – B12, B6, fólat C- og A-vítamín stuðla að heilbrigði hjarta- og æðakerfis
- Blöðruhálskirtill – Lýkópen, brenninetla og graskersfræ eru talin stuðla að heilbrigði blöðruhálskirtils
- Testósterónjafnvægi – Sínk er mikilvægt til að viðhalda eðlilegu magni testósteróns í blóðinu
- Ónæmiskerfi – D-vítamín, C-vítamín, sínk, selen, B-12 og fólat stuðla að eðlilegri virkni ónæmiskerfisins
- Fyrir dagana sem þú ert á hlaupum og nærð ekki að borða eina næringarríka máltíð.
- Fyrir dagana sem orkan er ekki upp á sitt besta.
- Fyrir dagana sem þú maxaðir í ræktinni og þarft smá auka fyrir endurheimtina.
- Fyrir hvern einasta dag til að tryggja líkamanum öll helstu næringarefnin.
- 1x D vítamín
- 1x burnirót
- 1x fjölvítamín- og steinefnablöndu
- 2x jurtablöndu með betasítósteról, lýkópen, brenninetlurót og graskersfræjum
- Öflug blanda B-vítamína stuðlar m.a. að eðlilegri orkumyndun, dregur úr þreytu og stuðlar að eðlilegri starfsemi tauga-, ónæmis- og hormónakerfis.
- B12, fólat og B6 stuðla enn fremur að eðlilegum efnaskiptum hvað varðar hómósystein en það er amínósýra sem þarf að huga sérstaklega að með hækkandi aldri. Of hátt magn hómósýsteins í blóðinu hefur verið tengt við aukna hættu á hjartasjúkdómum, heilablóðfalli og heilabilun en B12, fólat og B6 stuðla að því að halda magninu innan eðlilegra marka.
- A-vítamín stuðlar að eðlilegri starfsemi hjartans og er ómissandi fyrir eðlilega slímhúð, húð, sjón og ónæmiskerfi.
- C-vítamín stuðlar m.a. að eðlilegri myndum kollagens, styrkir ónæmiskerfið og taugakerfið, ver frumur gegn oxunarálagi, eykur upptöku járns og dregur úr þreytu.
- D-vítamín stuðlar m.a. að eðlilegri úrvinnslu kalks og viðhaldi beina og tanna , styrkir ónæmiskerfið og stuðlar að eðlilegri vöðvastarfsemi.
- Magnesíum kemur víða við í líkamanum og stuðlar m.a. eðlilegri virkni tauga og vöðva, dregur úr þreytu og lúa og stuðlar að eðlilegu viðhaldi beina og tanna.
- Joð stuðlar að eðlilegri starfsemi taugakerfis, eðlilegri húð og eðlilegri starfsemi skjaldkirtils.
- Selen stuðlar að eðlilegu viðhaldi hárs og nagla auk þess að stuðla að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfis og skjaldkirtils.
- Sink stuðlar m.a. að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfis og eðlilegu viðhaldi beina, tanna, húðar, hárs, nagla og sjónar. Það er ennfremur ómissandi til að viðhalda eðlilegu magni testosteróns í blóðinu.
- K-vítamín stuðlar að eðlilegri blóðstorknun og eðlilegu viðhaldi beina.
- Kopar stuðlar m.a. að viðhaldi eðlilegra bandvefja, eðlilegri orkuvinnslu, eðlilegri starfsemi taugakerfis og ónæmiskerfis og eðlilegri starfsemi hárs og húðar.
- Mangan er mikilvægt fyrir orkuvinnslu, bein og bandvefi.
- Burnirót hefur verið notuð um árhundruð og er talin orkugefandi.
- Lýkópen er öflugt andoxunarefni sem finnst m.a. í tómötum og rannsóknir benda til að það hafi góð áhrif á heilsu hjartans og geti hjálpað til við að koma í veg fyrir vandamál tengd blöðruhálskirtli
- Graskersfræ innihalda m.a. mikið magn sínks og magnesíum auk ýmissa annarra næringarefna.
- Brenninetla er rík af næringarefnum og rannsóknir benda til þess að hún geti hjálpað til við að koma í veg fyrir og draga úr einkennum vegna stækkunar í blöðruhálskirtli.