Microlax
5 ml - Innhellilyf
1.008 kr.
Microlax eykur vatnsinnihald hægðanna og gerir þær mýkri. Microlax hefur einungis staðbundna verkun í endaþarminum, það berst ekki út í líkamann. Þú getur notað Microlax við hægðatregðu og til þarmahreinsunar fyrir skurðaðgerð, endaþarmsspeglun eða röntgenmyndatöku á þörmum. Leitið til læknis ef sjúkdómseinkenni versna eða lagast ekki.
Nota á Microlax um það bil 15 mínútum áður en áhrifa er óskað. Venjulegur skammtur er Fullorðnir og börn Innihald einnar túpu (5 ml) skal tæma í endaþarm eins og lýst er á myndunum hér fyrir neðan. Microlax má eingöngu nota handa börnum yngri en 3 ára í samráði við lækni. Hjá börnum yngri en 3 ára á aðeins að setja helming túpusprotans í endaþarminn (sjá merki á sprotanum).
Frekari upplýsingar
Form | |
---|---|
Magn | |
Heiti Innihaldsefnis | |
Merking |
Get ég aðstoðað?
