Til baka

Saga Natura AstaLýsi 100ml

AstaLýsi smellpassar í morgunrútínuna, einstök blanda af íslensku Astaxanthin, síldarlýsi (omega-3) og D-vítamíni, öll innihaldsefnin styðja við hraustan líkama, sannkölluð þrenna af góðgæti fyrir líkamann. Góð heilsuáhrif lýsis eru vel þekkt en við höfum bætt við hinu magnaða andoxunarefni Astaxanthin, Omega-3 og Astaxanthin vinna vel saman og magna áhrif hvers annars á líkamann. Þessi efni eru talin minnka bólgur í vefjum líkamans sem stuðla að bættri starfsemi hjarta, heila og augna.

2.730 kr.

2.730 kr.

vnr: 88031787

AstaLýsi er lýsis-blanda sem hefur góð áhrif á heilsu. Blandan inniheldur Omega3, D-vítamín og íslenskt astaxanthin. AstaLýsi er bragðgott og hefur unnið til iTQi bragðverðlauna.

Omega-3 fitusýrur hafa góð áhrif á hjarta- og æðakerfið. Einnig gegna fitusýrurnar mikilvægu hlutverki við uppbyggingu heila og miðtaugakerfis.

D-vítamín er gegnir mörgum mikilvægum hlutverkum í líkamanum. Eitt helsta hlutverk D-vítamíns er að stuðla að eðlilegri upptöku kalks og fosfórs í líkamanum og er nauðsynlegt fyrir uppbyggingu beina þar sem það örvar frásog kalks og stuðlar að eðilegum kalkstyrk í blóði. Einnig hafa rannsóknir bent til að D-vítamín inntaka getur haft töluverð áhrif á líkamlega og andlega heilsu. Einnig hefur það góð áhrif á ónæmiskerfi líkamans.

Íslenskt astaxanthin er eitt öflugasta andoxunarefni náttúrunnar. Rannsóknir benda til að astaxanthin verji húðina gegn útfjólubláum geislum sólar og dregur þar með úr ótímabærri öldrun húðarinnar. Talið er að húðin þorni síður og hrukkist eins og gerist hjá flestum þegar aldurinn færist yfir. Rannsóknir benda einnig til jákvæð áhrif á úthald og orku þess sem það er talið veita betri endurheimt vöðva eftir átök.

AstaLýsi er í senn meinhollt og bragðgott, en hefur lýsið verið verðlaunað af iTQi fyrir bragðgæði þess.

Ráðlagður daglegur skammtur: 1 teskeið (5 ml).

Hver teskeið (5 ml) af AstaLýsi gefur þér:
• Náttúrulegt íslenskt AstaKey™ Astaxanthin 2mg
• 900 mg Omega-3
• D-vítamín 20µg
Ein flaska af AstaLýsi gefur þér um 34 teskeiðar.
Astaxanthin er eitt öflugasta andoxunarefni móður náttúru, það ver frumur fyrir oxun og sindurefnum. Astaxanthin hefur margvísleg áhrif á líkamann, húð, vöðvar, liðbönd, augu og hjarta- og æðakerfi eru öll móttækileg fyrir Astaxanthin, sem gerir það einstaklega virkt meðal andoxunarefna.
Lykillinn að okkar hreina og náttúrulega íslenska Astaxanthin eru smáþörungarnir Haematococcus pluvialis sem stútfullir eru af góðum næringarefnum.