Til baka

Finola Hampte 20gr

Ræktað og pakkað í Gautavík, 766 Djúpavogi. Á býlinu Gautavík fer fjölbreytt starfsemi fram, m.a. inni- og útiræktun á iðnaðarhampi frá 2019. Við notum eingöngu frætegundina Finola í teið okkar sem eru af plöntutegundinni Cannabis Sativa. Fræin eru á sáðvörulista Evrópusambandsins og vottuð til að innihalda 3-5% CBD en innan...

2.590 kr.

2.590 kr.

vnr: 927420

Ræktað og pakkað í Gautavík, 766 Djúpavogi.

Á býlinu Gautavík fer fjölbreytt starfsemi fram, m.a. inni- og útiræktun á iðnaðarhampi frá 2019.

Við notum eingöngu frætegundina Finola í teið okkar sem eru af plöntutegundinni Cannabis Sativa.

Fræin eru á sáðvörulista Evrópusambandsins og vottuð til að innihalda 3-5% CBD en innan við 0,2% THC – sem er snefilmagn.

Við ræktunina voru engin eiturefni eða kemísk áburðarefni notuð, eingöngu húsdýraáburður og rigningarvatn.

Við handtínum blómin og laufin næst þeim af hampplöntunum, þurrkum þau í sérstökum þurrkgrindum og svo netapokum við ákveðið hita- og rakastig, handmölum og handpökkum í vandaða “ziplock” poka í vottuðu framleiðslurými.

Við þurrkunina rýrna þau um ríflega 90% í þyngd og þegar möluð verður grófa efnið eftir í sigtinuþ.m.t. fræin sem sum blómin voru byrjuð að mynda í lok uppskerutímans því þau innihalda kannabínóða aðeins í snefilmagni og viljum við þau því ekki hafa þau með í teinu.

Teið er milt og gott á bragðið eitt og sér, en má bragðbæta, t.d. með hunangi. Þeir sem eru ekki fyrir te geta kælt það með ísmolum og bragðbætt með djúsþykkni.

Við mælum með að út í teið sé sett 1/2-1 tsk af olíu því hinir heilsusamlegu kannbínóðar (e: cannabinoids) á hampinum eru fituleysanlegirBragðlaus kókosolía og avocado-olía henta vel þar sem þær hafa lágmarks áhrif á bragðið. Ef kælt er betra að nota avocado olíu því hún harðnar ekki í kulda.

Teið má einnig nota sem kryddjurtir í matvæli sem eru hituð/steikt og innihalda olíu (nauðsynlegt til að virkja kannabínóðana). Bragðið er milt svo það hefur nánast engin áhrif á bragðið af mætvælunum.