Til baka

ElectroRice 5 pokar

ElectroRice er til inntöku vegna ofþornunar sökum niðurgangs “Oral Rehydration Solution” (ORS). Lausnin er unnin úr hrísgrjónum samkvæmt stöðlum Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar (WHO). ElectroRice tryggir hámarks upptöku á vökva til að bæta fyrir það vökvatap sem verður vegna niðurgangs.

1.626 kr.

vnr: 88015303

Niðurgangur er algengt vandamál, sérstaklega hjá börnum.   Við niðurgang missir líkaminn mjög hratt vökva og electrolíta sem eru honum lífsnauðsynlegir til þess að geta starfað.

Til að koma á eðlilegri starfsemi í líkamanum er grunnmeðferð við niðurgangi að koma á vökvajafnvægi. Þetta á sérstaklega við hjá börnum.

Kostir bragðbættra ElectroRice electrolíta ORS hrísgrjónalausnar eru eftirfarandi:

  • Hrísgrjónalausnin dregur úr niðurgangi og hægir á vökvatapi.
  • Sterkjugrunnurinn (í stað glúkósu) hefur þau áhrif að það verður hæg losun á glukósumólikúlum. Lág osmósuþéttni (140 mosm/L) eykur upptöku á natríum, glúkósu og vatni.
  • Bragðgóð lausn er lykillinn að því að barn fáist til að drekka hana.
  • Lausnin er einnig næring.
  • Þægilegt pakkað í hæfilega skammta.

Leysið upp eina pakkningu í 200 ml af vatni (5 skammtar á dag, einn poki inniheldur 1 skammt).