Til baka

Difrax Natural Peli 170ml Karmella

Pelinn sem hefur verið í uppáhaldi hjá börnum og foreldrum vegna hins einstaka „anti-colic“ loks og S-lögunar pelans . – Þessir eiginleikar pelans tryggja stöðugt og jafnt flæði vökvans.

2.694 kr.

vnr: 705B24

Vara væntanleg

Eiginleikarnir koma í veg fyrir tómarúmssog hjá barninu úr pelanum, sem aftur tryggir jafnt og stöðugt flæði vökvans og gerir barninu kleift að drekka án þess að innbyrgða umfram óþarfa loft. – Þannig draga hinir sérstöku eiginleikar úr líkunum á óþarfa magakrampa, ristilkrampa, hægðatregðu, ropa, bakflæði og uppköst af völdum umfram lofts.

* Sérstök S-lögun pelans gefur eðlilega og náttúrulega brjóstagjafastellingu, bæði fyrir krílið og þann sem gefur því. Stuðlar að tengslamyndun við barnið ásamt því sem sá sem gefur getur verið í eðlilegri og afslappaðri líkamsstöðu.

* Læknar hafa mælt með þeirri náttúrulegu bognu líkamsstöðu barnsins sem S-pelinn veitir.

* S-pelann má gefa krílunum allt frá fæðingu, en hann hefur einnig sýnt og sannað ágæti sitt samhliða brjóstagjöf.

* S-pelinn hentar jafnt nýburum sem og fyrirburum.

* Botn pelans má skrúfa af, sem gerir þrif og áfyllingu á pelann einstaklega aðgengileg.

* S-pelinn er hannaður í samvinnu við lækna og ljósmæður.

* S-pelinn kemur með túttu í stærð small sem einkum hentar nýburum og fyrirburum. Þá er hægt að kaupa aukapelatúttur í stærðum medium og large. – Einstaklega mjúkt yfirborð túttanna, gefur gott grip fyrir krílið.

* Difrax hefur þróað sérstakan pelahitara sem sérstaklega er hannaður fyrir S-pelann. Það tekur hitarann 3 mínútur að hita vökvann í ráðlagt hitastig, 37’C.

* S-pelinn passar fullkomlega á Difrax Btob brjóstapumpuna.

* Fyrir notkun er ráðlagt að ganga úr skugga um að pínulitla gatið fyrir miðju silkikonstykkisins sé opið með því að kreista stykkið nokkrum sinnum.

* Mikilvægt er að framkvæma daglega athugun á pelatúttu, toga þéttingsfast í hana sjálfa og ganga úr skugga um að hún sé heil og óskemmd.

* Það má setja S-pelann í örbylgjuofn og uppþvottavél.

* Difrax vörurnar eru þróaðar í samvinnu við læknateymi sem m.a. samanstendur af barnalæknum, talmeinatæknum, tannlæknum, mjólkursérfræðingum og næringarráðgjöfum.

* Allar Difrax vörurnar eru BPA fríar.