Til baka 20%

Better You B12 Boost munnúði 25ML.

B12 Boost munnúðinn frá Better You inniheldur methylcobalamin sem er náttúrulegt form þessa vítamíns og einmitt það sem er best fyrir okkur að taka. Úðinn er bragðgóður og tryggir að líkaminn fái allt það B12 vítamín sem hann þarf á afar auðveldan og einfaldan máta. Úðinn inniheldur einnig steinefnið króm sem nýtist öllum og er sérstaklega hjálplegt fólki með efnaskiptavillu og/eða vandamál tengdum blóðsykri, ásamt grænt te sem lengi hefur verið þekkt fyrir heilsueflandi eiginleika sína.

2.238 kr.

vnr: 88022328

B12 Boost er bragðgóður munnúði sem hentar öllum

B12 vítamín er gríðarlega mikilvægt og gegnir margvíslegu hlutverki í líkama okkar. Það er m.a. nauðsynlegt fyrir skiptingu frumna en rauðu blóðkornin eru í hópi þeirra frumna sem skipta sér oftast og því veldur B12 vítamínskortur lágum blóðgildum í líkamanum. B12 vítamín er nauðsynlegt fyrir nýmyndun tauganna og spilar það því stórt hlutverk í að halda taugakerfinu okkar í lagi sem og heilastarfseminni.

Í ljósi þess að B12 skortur tengist oft vandamálum í meltingarvegi er hentugt að innbyrða það í formi munnúða. Upptaka á B12 vítamíni í gegnum slímhúð í munni er örugg og áhrifarík leið til að tryggja líkamanum nægjanlegt magn af B12 vítamíni eða til að verja okkur fyrir B12 vítamín skorti.

Hvað veldur B12 vítamín skorti?

B12 er það vítamín sem flesta skortir á efri árum og oft er það vegna skorts á efninu „Intrinsic Factor“ sem er mikilvægt prótein, framleitt í maga og hjálpar til við upptöku. Það þýðir að þó svo að við borðum dýraafurðir eða tökum vítamín töflur, verður engin upptaka á B12 vítamíni og við lendum í skorti. Óhófleg neysla áfengis, kaffi, kóladrykkja og nikótíns, notkun ýmissa lyfja, m.a. sýrubindandi lyfja og mikil eða langvarandi notkun sýklalyfja er meðal þess sem getur valdið okkur skorti.

Einkenni B12 vítamín skorts geta verið eftirfarandi:

  • Orkuleysi og slen
  • Þreyta, ör hjartsláttur, andþyngsli og svimi
  • Nálardofi í hand- og fótleggjum
  • Þyngdartap
  • Minnisleysi

B12 Boost munnúðinn frá Better You inniheldur methylcobalamin sem er náttúrulegt form þessa vítamíns og einmitt það sem er best fyrir okkur að taka. Úðinn er bragðgóður og tryggir að líkaminn fái allt það B12 vítamín sem hann þarf á afar auðveldan og einfaldan máta. Úðinn inniheldur einnig steinefnið króm sem nýtist öllum og er sérstaklega hjálplegt fólki með efnaskiptavillu og/eða vandamál tengdum blóðsykri, ásamt grænt te sem lengi hefur verið þekkt fyrir heilsueflandi eiginleika sína.

B12 Boost er m.a. hentugt fyrir fólk sem:

  • er síþreytt eða orkulaust
  • er grænmetisætur eða vegan
  • er yfir 60 ára
  • er íþróttafólk eða stundar ákafa hreyfingu
  • er í annasömu starfi
  • er barnshafandi eða með barn á brjósti

Fjórir úðar undir tungurót á dag.