Til baka

Bug Bite Thing

Bug Bite Thing var stofnað af mæðgum árið 2017. Þær mæðgur voru eins og þær segja sjálfar "seglar" á moskítóflugur og vildu því finna lausn á kláðanum og öðrum óþægindum sem því fylgir. Þær áttuðu sig á því að flestar...

1.459 kr.

vnr: BBT001

Bug Bite Thing var stofnað af mæðgum árið 2017. Þær mæðgur voru eins og þær segja sjálfar “seglar” á moskítóflugur og vildu því finna lausn á kláðanum og öðrum
óþægindum sem því fylgir. Þær áttuðu sig á því að flestar vörur sem voru til nú þegar unnu ekki á orsökunum heldur voru eingöngu að hylja afleiðingarnar eða einkennin.
Þær settu því á markað vöru sem notar sog til að fjarlægja munnvatn/eitur skordýra og stoppa kláða, stingi og bólgu.
Varan kom fram í þáttunum Shark Tank í Bandaríkjunum árið 2019, fékk boð frá öllum fjárfestunum og varð í kjölfarið mjög vinsæl erlendis

Bug Bite Thing virkar á fleiri tegundir skordýra en það sem skiptir okkur máli er að þetta virkar á býflugur, geitunga og lúsmý.

Bug Bite Thing er létt og fyrirferðarlítið og hentar börnum sem og fullorðnum.

Náttúruleg og einföld lausn þar sem ekki er verið að bera nein efni eða annað skaðlegt á húðina.

Virkar best ef notað innan 2 mínútna en hægt að nota í allt að 24 tíma frá stungu/biti.
Varðandi lúsmý og önnur skordýr sem stinga eða bíta án þess að þú sjáir það eða finnir fyrir því strax þá er
Bug Bite Thing notað um leið og kláði eða roði gerir vart við sig.