Miðlægt apótek fyrir stofnanir
Sjúkrahúsapótek Lyfjavers fyllir á lyfjabirgðir stofnana um land allt
Hjúkrunardeildir um land allt senda Lyfjaveri lyfjapantanir til áfyllingar á lyfjalager deildanna og sinnir Lyfjaver því hlutverki sjúkrahúsapóteks. Er þess gætt að nægar birgðir séu til staðar á deildunum til þess að mæta þeirri þörf sem þar er. Með því að útvista slíkri þjónustu spara viðskiptavinir mikinn kostnað í starfsmannahaldi og birgðasöfnun verður minni.
Bylting hefur orðið á þessari þjónustu með innleiðingu Alfa birgðakerfis frá hugbúnaðarfyrirtækinu Þula – norrænt hugvit, á stofnanir í þjónustu Lyfjavers. Birgðakerfið heldur utan um lyfjabirgðir og notkun á stofnunum og framkallar sjálfvirkar pantanir til Lyfjavers þegar birgðastaða fer undir ákveðin mörk.
Kostir birgðakerfisins eru m.a. eftirfarandi:
- Mikill tímasparnaður hjúkrunarfólks við lyfjapantanir
- Lyfjalager og fjárbinding minnkar
- Lyfjakostnaður lækkar
- Kerfið gefur yfirlit yfir birgðastöðu á lyfjageymslum innan heilbrigðisstofnana – sparar tíma ef nýta þarf lyf á milli deilda
- Rafrænar „grænar bækur“ eru innbyggðar í kerfið – bókhald eftirritunarskyldra lyfja á pappír hættir. Kerfið einfaldar leiðréttingar á misræmi og vinnur gegn hugsanlegu misferli.
Á meðal fyrstu stofnana sem innleiddu hugbúnaðinn voru Öldrunarheimili Akureyrar og hefur kerfið verið í notkun þar síðan 2016. Kerfið hefur gefið mjög góða raun og hlutu Öldrunarheimili Akureyrar verðlaun og viðurkenningu fyrir nýsköpun í opinberri þjónustu og stjórnsýslu 2018 vegna innleiðingar á Alfa birgðakerfinu.Hér má sjá myndband um notkun á Alfa birgðakerfinu á Öldrunarheimilum Akureyrar
