Sorbact Sveppagrisjuborði 10x200cm
3.518 kr.
Meðferð sem fyrirbyggir sveppasýkingu og bakteríusýkingu í húð. Flýtir sáragræðsluferli.
Klínískar rannsóknir sýna bata hjá yfir 85% þátttakenda. Meðferðin er árangursrík og örugg. Fyrir tilstilli vatnsfælni bindast sveppir (Candida albicans)og sárabakteríur við yfirborð Sorbact®, sem verða óvirkir og hætta að fjölga sér. Meðferðin hrindir af stað sáragræðsluyrir tilstilli náttúrulegrar virkni án sveppa- eða sýkladrepandi efna.
Virkar einnig á alla helstu sárasýkla, m.a. MÓSA og VRE. Dregur úr sársauka. Heldur sárinu hreinu og fyrirbyggir sýkingu. Ótakmörkuð notkun á allar
tegundir sára. Grisjuborðinn er úr mjúkum, þægilegum bómullarvef. Meðferðin er því laus við óþægindi og óþægilega klísturáferð.
Leiðbeiningar:
1. Hreinsið húðina. Klippið borðann í hentuga stærð til að þekja sýkta svæðið.
- Leggið Sorbact® grisjuborðann beint á meðferðarsvæðið, bein snerting við sýkta svæðið er mikilvæg. EKKI nota neina áburði eða feit krem samhliða, það dregur úr virkni umbúðanna.
- Notið húðvænan plástur til að festa sinn hvorn enda borðans. Gætið þess að plástur eða annar límfötur límist aðeins á heila og heilbrigða húð. Brjóstahaldara, íþróttatopp eða nærbuxur er einnig hægt að nota til að halda umbúðum á réttum stað.
- Skiptið um umbúðir daglega. Haldið áfram notkun Sorbact® í 2-3 daga eftir að einkenni hverfa til að koma í veg fyrir að sýkingin taki sig upp aftur.
Græni grisjuvefurinn er gerður úr bómull, mettuðu DACC, sem er fitusýru-afleiða sem myndar sterka vatnsfælnivirkni.