Til baka

Ultra Macular augnvítamín 120hylki

Ultra Macular™ augnvítamín með fjölvítamíni er fullkomin samsetning 16 fjölvítamína og steinefna í samræmi við ráðlagða dagskammta og byggir á niðurstöðum nýjustu rannsóknar á þessu sviði, AREDS 2. Þessi rannsókn hefur brotið blað í fyrirbyggjandi meðferðarmöguleikum á augnbotnahrörnun þar sem sérstaklega hefur verið...

10.290 kr.

vnr: 88025549

Ultra Macular™ augnvítamín með fjölvítamíni er fullkomin samsetning 16 fjölvítamína og steinefna í samræmi við ráðlagða dagskammta og byggir á niðurstöðum nýjustu rannsóknar á þessu sviði, AREDS 2. Þessi rannsókn hefur brotið blað í fyrirbyggjandi meðferðarmöguleikum á augnbotnahrörnun þar sem sérstaklega hefur verið lagt upp úr réttum hlutföllum andoxunarefna og vítamína til að ná sem bestum árangri. Til viðbótar við fyrirbyggjandi meðferð við augnbotnahrörnun er hér um heildarstoð við líkamann að ræða, engin þörf er á því að kaupa önnur vítamín, gagnstætt mörgum öðrum augnvítamíntegundum.

Hverjir ættu að taka Ultra Macular™?
Inntaka Ultra Macular™ er mjög einföld, aðeins 2 hylki á dag. Allir sem þjást af augnbotnahrörnun ættu að íhuga að taka inn Ultra Macular™ til að fyrirbyggja frekari framgöngu sjúkdómsins og þar með sjónskerðingu. Við hvetjum þig jafnframt til að fara reglulega til augnlæknis.

Kostir

  • Ber árangur
  • Augnlæknar komu að samsetningu vítamínsins
  • Virkni innihaldsefna hefur verið sannreynd í klínískum rannsóknum m.a. meso-zeaxanthin, lútein og zeaxanthin
  • Heildarvítamínlausn fyrir líkamann
  • Hylki sem auðvelt er að kyngja
  • Tveggja mánaða skammtur í hverju glasi (aðeins tvær töflur á dag)