Beint í efni
Mínar Síður
Verslun/Vítamín og bætiefni/Vítamín/
Dr Frei C Vítamín Freyðitöflur 20stk

Dr Frei C Vítamín Freyðitöflur 20stk

3741

Product information



C-vítamín sem er einnig þekkt undir nafninu askorbínsýra er án efa mjög mikilvægt vítamín fyrir mannslíkamann og gegnir margskonar hlutverki. Flest dýr ná að framleiða sitt eigið C vítamín úr glúkósa en maðurinn hefur ekki þá getu og verður að treysta á að fá nægilegt C-vítamín úr fæðunni. Þar sem C vítamín er vatnsleysanlegt vítamín og líkaminn getur ekki geymt birgðir af þessu mikilvæga  vítamíni er nauðsynlegt að tryggja nægjanlegt magn dags daglega.  

  • C- vítamín er nauðsynlegt fyrir starfsemi ónæmiskerfisins, eykur viðnám líkamans gegn sýkingum og kemur í veg fyrir hörgulsjúkdóminn skyrbjúg.
  • C -vítamín er öflugt andoxunarefni sem er talið geta verndað frumur líkamans gegn sindurefnum og áhrifum skaðlegra eiturefna og þungamálma og varið önnur efni fyrir oxun eins og t.d A vítamín, E vítamín og fitusýrur.
  • C-vítamín tekur þátt í myndun kollagens sem er nauðsynlegt byggingarefni í brjóski, sinum, æðum, beinum, tönnum og húð.
  • C- vítamín er mikilvægt fyrir frásog og nýtingu líkamans á járni.
  • C- vítamin ásamt öðrum andoxunarefnum getur átt þátt í að stuðla að lækkun kólesteróls í blóði, verndað æðaveggi gegn skemmdum og þannig unnið gegn hjarta og æðasjúkdómum.
  • C-vítamín er nauðsynlegt fyrir myndun hormóna sem koma að stjórnun efnaskipta í líkamanum.