Beint í efni
Mínar Síður

Dolorin

413116

500mg – 30 töflur (þynnupakki)

Product information


Attachments


Dolorin er til meðferðar við vægum til miðlungi miklum verkjum, hálsbólgu (að frátalinni eitlabólgu), og vægum til miðlungi miklum höfuðverk. Virka efnið í Dolorin er paracetamól, sem er þekkt fyrir verkjastillandi og hitalækkandi verkun sína. Auk þess að vera verkjastillandi og hitalækkandi þá hefur það eftirfarandi eiginleika: Það hefur ekki áhrif á slímhúð magans, því geta þeir sem hafa meltingarfæratruflanir notað lyfið. Það hefur ekki áhrif á blóðstorknunarferlið þegar það er tekið í ráðlögðum meðferðarskömmtum, og má því nota það samhliða segavarnarlyfjum. Hinsvegar, hefur paracetamól, í meðferðarskömmtum, enga bólgueyðandi verkun eða áhrif á gigtareinkenni öfugt við salisýlöt.