Beint í efni
Mínar Síður
Verslun/Matvara/Te & kaffi/
Aromandise Matcha Ceremony Sett Græn skál

Aromandise Matcha Ceremony Sett Græn skál

THECOF4

Product information


Short description

  • Sölueining 30gr. dugar að öllu jöfnu í 30-60 bolla af MATCHA te og / eða Matcha latte. 

 Um Matcha teið okkar .:

Matcha er búið til úr fersku hágæða grænu te sem kallast Gyokuru. 

Teblöðin eru meðhöndluð með gufu, síðan þurrkuð og mulin í steinmyllu þannig að engin næring úr teblöðunum fer til spillis.   

Matcha er stútfullt af andoxunarefnum,  minnkar þreytu,  eykur orku og jafnframt talið auka grunnbrennslu líkamans um allt að 20%  

Örlítið koffein er í Matcha sem gefur smá orkuskot sem er þó dempað af L-Theanine amminosýru sem Matcha er ríkt af ásamt fleiri amminosýrum. 

Matcha er til í mörgum gæðaflokkum sem byggir m.a. á staðsetningu, loftslagi og aðferðum við ræktun og frágang. 

Hlíðar Uji héraðs í Japan þykir henta einstaklega vel til te ræktunar þar sem er frjór jarðvegur, hreint vatn og hentugt loftslag. 

Lífræna Matcha teið okkar kemur af ökrum mjög virtra framleiðanda í Uji héraði í Japan þar sem lögð er áhersla á 100% lífræna ræktun og viðurkenndar aðferðir þar sem plönturnar eru í skugga síðustu 3 vikur fyrir uppskeru sem stuðlar að hámarks amminosýrumagni í teblöðunum m.a. af L-Théanine.  

Almennt er talað um 1, 2 og 3 uppskeru. 

Prestige Ceremonial Grade Matcha er úr fyrstu uppskeru (1st harvest )  sem skilar að öllu jöfnu hæstu gæðum.  Hentar vel í Matcha viðburði og fyrir þá sem kjósa aðeins það besta.     

Premium Ceremonial Grade Matcha er einnig úr fyrstu uppskeru (1st harvest )  sem skilar að öllu jöfnu hæstu gæðum.  Hentar vel í Matcha viðburði og dagleg not í hámarks gæðum.    
 

Aðrar Matcha afurðir okkar koma úr annari uppskeru ( 2nd harvest ) sem gefur þeirri fyrstu lítið eftir og fullnægir öllum kröfum um hreinleika og gæði enda kemur mest selda Matchað okkar úr annari uppskeru sem er á frábæru verði miðað við gæði.    Bragðmunur er á fyrstu og annari uppskeru og margir kjósa frekar afurðir úr annari uppskeru í þau not sem hentar þeim. 

Þriðja uppskera er almennt ódýrara og gjarnan notað í eldhús, bakstur ofl og jafnframt af framleiðendum sem leggja eingöngu áherslu á lágt verð.