Aromandise MATCHA Ceremony kynningarpakki
THECOF
Product information
Short description
Lífrænt Premium Ceremonial Grade MATCHA te duft 30gr + Matcha te þeytari
Lýsing
Matcha er búið til úr fersku hágæða grænu te sem kallast Gyokuru.
Teblöðin eru meðhöndluð með gufu, síðan þurrkuð og mulin í steinmyllu þannig að engin næring úr teblöðunum fer til spillis.
Matcha er stútfullt af andoxunarefnum, minnkar þreytu, eykur orku og jafnframt talið auka grunnbrennslu líkamans um allt að 20%
Örlítið koffein er í Matcha sem gefur smá orkuskot sem er þó dempað af L-Theanine amminosýru sem Matcha er ríkt af ásamt fleiri amminosýrum.
Matcha er til í mörgum gæðaflokkum sem byggir m.a. á staðsetningu, loftslagi og aðferðum við ræktun og frágang.
Hlíðar Uji héraðs í Japan þykir henta einstaklega vel til te ræktunar þar sem er frjór jarðvegur, hreint vatn og hentugt loftslag.
