Aromandise Lífrænt Matcha Vanilla blanda 170gr
THEMB7
Product information
Short description
Staukur með 170 gr blöndu af lífrænu Matcha og Vanilla sem dugar að öllu jöfnu í 20-25 stóra bolla af ljúffengum heitum drykk.
Lýsing
Lífræna Matcha teið okkar kemur frá litlum fjölskyldu búgarði í Uji héraði sem er talið eitt albesta te ræktunarsvæðið í Japan.
Fylgt er ströngum aldagömlum ræktunarhefðum þar sem teblöðin eru ræktuð í skugga undir netum síðustu 3 vikur fyrir uppskeru sem eykur L-Theanine magn í blöðunum og viðheldur betur bragði og lit.
Teblöðin eru meðhöndluð með gufu, síðan þurrkuð og mulin í steinmyllu þannig að engin næring úr teblöðunum fer til spillis.
Matcha teið er auk L-Theanine, ríkt af steinefnum, vítamínum og andoxunarefnum.
