Beint í efni
Mínar Síður
Verslun/Munn- og tannhirða/Munnþurrkur/
XyliMelts Neutral 40stk

XyliMelts Neutral 40stk

569408002161

Product information



Munnþurrkur er þegar munnurinn framleiðir ekki nægilegt munnvatn til að halda honum rökum og þægilegum. Afleiðingar munnþurrks Þurr tilfinning í munni, slímhúðir loða saman og verða viðkvæmar Erfiðleikar við að kyngja og tala. Brennandi eða stingandi tilfinning í tungu eða góm. Tannkul Sveppasýkingar Tannskemmdir Tannholdsbólgur Sýkingar í munnvikjum Andremma Skert bragðskyn Sár í munni Næturvernd Munnþurrkur á nóttunni getur verið sérstaklega óþægilegur þar sem sumir vakna reglulega yfir nóttina til að bleyta munninn. Þetta hefur mjög slæm áhrif á svefngæði sem getur haft víðtæk áhrif á almenna heilsu einstaklinga. XyliMelts eru hannaðar til að halda rakastigi stöðugu í svefni án þess að trufla þig. Þær loða mjúklega við góm og leysast upp hægt og örugglega á meðan þú sefur. Þetta hjálpar bæði til við að viðhalda svefngæðum en einnig til að forðast þynningu á slímhúð og varna gegn tannskemmdum. Munnvatn gegnir ýmsum mikilvægum hlutverkum í líkamanum – það smyr munninn til að hindra núning, undirbýr fæðu fyrir kyngingu, byrjar fyrsta skref meltingar, hindrar bakteríur/sveppi og verndar tennur gegn sýrueyðingu og tannskemmdum. Skortur á munnvatni getur því haft fjölþætt áhrif, bæði á munnheilsu og lífsgæði.