Beint í efni
Mínar Síður
Verslun/Vítamín og bætiefni/Bætiefni/
Proibs skammtabréf 30stk

Proibs skammtabréf 30stk

35151001

Product information


Short description

PROIBS® er vottuð lækningavara til meðhöndlunar á einkennum iðraólgu (IBS), eins og magaverk, uppþembu og breyttum hægðum (niðurgangur og/eða hægðatregða).


Iðraólga er talin vera algengasti sjúkdómur í meltingarfærum og hrjáir 15 – 20% fullorðinna einstaklinga. Flestir sjúklinganna eru á aldrinum 20-50 ára og eru konur í meirihluta. Þessi sjúkdómur var áður nefndur ristilerting, þarmaerting eða ristilkrampar. Iðraólga er truflun á starfsemi þarmanna sem getur leitt til ýmis konar sjúkdómseinkenna og óþæginda. Algengustu einkennin eru verkir, uppþemba, vindgangur og breyting á hægðum. Lítið er vitað um orsakir sjúkdómsins en talið er að þarmar og ristill séu óeðlilega viðkvæm fyrir þáttum sem örva starfsemi meltingarfæranna, eins og mat og lofti í meltingarfærum, vissum lyfjum og vissum fæðutegundum. Meðhöndlunin felst því í að meðhöndla einkennin. Þessi vara er hentug til langtíma notkunar. Hinsvegar; ef hún er notuð í langan tíma eða ef einkenni versna er mælt með að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing. Einstaklingum með sykursýki er ráðlagt að ráðfæra sig við sinn lækni áður en varan er notuð. Þunguðum konum og konum með barn á brjósti er ráðlagt að ráðfæra sig við lækni áður en PROIBS® er notað. Ráðlagt er að ráðfæra sig við lækni ef nota á þessa vöru ásamt lyfjum. Engar aukaverkanir eru þekktar fyrir þessa vöru. Láta skal lækni eða lyfjafræðing vita ef einstaklingar upplifa samt sem áður aukaverkanir.