Huemeno Me 30hylki
55109810
Product information
huemeno® Me var þróuð til að styðja við grunnþætti heilsunnar – með fáum, völdum innihaldsefnum sem vinna saman á öflugan hátt.
huemeno® Me er ekki lausn fyrir einstaka einkenni breytingaskeiðsins – heldur stoð sem byggir grunn að betri heilsu, orku og vellíðan til framtíðar. huemeno® hefur það að markmiði að styðja við heilsu og vellíðan kvenna á breytingaskeiði og á árunum sem fylgja, auk þess að leggja okkar af mörkum til að opna umræðuna um þetta mikilvæga tímabil í lífinu. huemeno® er fyrsta íslenska vörumerkið sem ber MTick® merkið - fyrsta alþjóðlega táknið sem sýnir að vara teljist „menopause-friendly“, þ.e. henti sérstaklega konum á og í kringum breytingaskeiðið.
huemeno® Me er aðalvaran í línunni og er fjölvirkur stuðningur fyrir konur. Varan getur stuðlað að: jafnvægi í þarmaflóru og meltingu efnaskiptaheilbrigði og orkuvinnslu og dregið úr þreytu og lúa örverujafnvægi í leggöngum og reglu á hormónastarfsemi og stuðlað að eðlilegri starfsemi taugakerfisins Lykilinnihaldsefni: Þrír klínískt prófaðir SynbÆctive® góðgerlastofnar (probiotics) Inúlín og FOS forgerlar (prebiotics) B6 vítamín B1 vítamín huemeno® Me er fyrsta val fyrir heildræn áhrif á meltingu, þarmaflóru, efnaskipti og flóru legganganna auk þess að stuðla að reglu á hormónastarfsemi, eðlilegri starfsemi taugakerfisins og stuðla að minni þreytu og lúa.
huemeno® – skýr nálgun fyrir framtíðina
huemeno® leggur áherslu á nálgun sem tekur mið af því hve einstaklingsbundin og fjölbreytt upplifun breytingaskeiðsins getur verið með öllum þeim fjölda einkenna sem geta birst okkur á mismunandi hátt. Við vitum að engin ein lausn hentar öllum – en teljum þó að allar konur ættu að huga að grunnstoðum heilsunnar, sérstaklega á þessu tímabili lífsins, ekki síst til að viðhalda góðri heilsu og atorku á árunum sem fylgja.
