Beint í efni
Mínar Síður
Verslun/Vítamín og bætiefni/Bætiefni/
Guli Miðinn Ashwagandha 90 hylki

Guli Miðinn Ashwagandha 90 hylki

88032649

Product information


Short description

Ashwagandha er ein þeirra jurta sem er hvað mest í hávegum höfð innan Ayurveda. Hún er það sem kallast adaptógenísk jurt (adaptogenic) sem þýða má sem jafnandi eða aðlagandi í þeirri merkingu að hún er talin stuðla að jafnvægi og hjálpa líkamanum að aðlagast og takast betur á við streitu, þreytu og orkuleysi.


Indverska læknishefðin, Ayurveda, hefur á síðustu árum náð sífellt meiri fótfestu á Vesturlöndum. Þessi ævaforna hefð er ansi ólík því sem við þekkjum en hún felst m.a. annars í því að nota ýmsar jurtir til að bæta heilsuna. Hún er oft kölluð „the mood root“ á ensku enda þykir hún sérstaklega góð til að koma jafnvægi á skapið. Ashwagandha hefur mikið verið rannsökuð og hafa niðurstöður ítrekað stutt við þá virkni sem jurtin hefur svo lengi verið þekkt fyrir. Ashwagandha Gula miðans er 100% lífræn, möluð rót án allra aukaefna. Mild og hrein. EKKI extrakt