NOBE Oat Wonder Gentle Cleansing Cream 150ml
NB-OW-01
Product information
Short description
NOBE Oat Wonder® Gentle Cleansing Cream er mildur, ófreyðandi andlitshreinsir sem nýtir kraft norðlægrar ofurfæðu – hafrann – í formi lífrænnar Fazer hafraolíu.
NOBE Oat Wonder® Gentle Cleansing Cream er mildur, ófreyðandi andlitshreinsir sem nýtir kraft norðlægrar ofurfæðu – hafrann – í formi lífrænnar Fazer hafraolíu. Hún er unnin úr hágæða höfrum með CO₂-útdráttartækni og er rík af fitusýrum, E-vítamíni og ceramíðum sem næra húðina, verja hana gegn sindurefnum og styrkja varnarhjúp hennar. Hafraolía hefur einnig róandi áhrif sem draga úr ertingu og koma í veg fyrir rakamissi, sem gerir hreinsinn sérstaklega hentugan fyrir viðkvæma og þurra húð.
Gentle Cleansing Cream hreinsar húðina og fjarlægir léttan farða með mildum yfirborðsvirkum efnum úr kókos, án þess að þurrka húðina eða skemma náttúrulegan varnarhjúp hennar. Rík og kremkennd áferð með mildum, örlítið vanillukenndum ilm sem veitir skemmtilega upplifun meðan þú þværð andlitið. Hreinsirinn skolast auðveldlega af án þess að skilja eftir fitutilfinningu. Húðin verður rakamettuð, mjúk og silkileg.
Hentar öllum húðgerðum og má nota bæði morgna og kvölds.
98,3% af innihaldsefnunum eru af náttúrulegum uppruna.


