Beint í efni
Mínar Síður
Verslun/Húðvörur/Andlit/
Neutrogena Collagen Bank Moisturizer 50ml

Neutrogena Collagen Bank Moisturizer 50ml

750428

Product information



Neutrogena CollagenBank Moisturize er þróað í samstarfi við húðlækna og hjálpar til við að varðveita kollagen fyrir fyllri og unglegri ásýnd húðar. Formúlan byggir á einkaleyfisvarinni Micro-Peptide Technology™ með kollageni og bakuchiol, sem er náttúrulegt plöntumiðað innihaldsefni sem hefur svipuð áhrif og retínól, sem ver húðina gegn umhverfisáhrifum sem skaða kollagen og vinnur á sýnilegum merkjum snemmbúinnar öldrunar húðar. Frá því á þrítugsaldri getur líkaminn misst allt að 1% af kollageni á ári og þetta fitulausa rakakrem sem fer fljótt inn í húðina, styður við náttúrulegt kollagen húðarinnar. Klínískar prófanir sýna að að minnsta kosti 87% notenda upplifðu bættan húðlit, meiri stinnleika og aukinn teygjanleika, sem eru fyrstu sýnilegu merki minnkandi kollagenframleiðslu. Niðurstöður sýna einnig að 95% fengu stinnari húð og 92% sögðust strax finna fyrir meiri raka, en eftir aðeins eina viku varð húðin sléttari og ljómandi. Einkaleyfisvarða Micro-Peptide Technology™ inniheldur agnir sem eru hannaðar til að vera einstaklega smáar svo þær nýtast sem best til að styðja við kollagen í húðinni. Formúlan er mild, hentar vel til daglegrar notkunar, fyrir allar húðgerðir og húðtóna og stíflar ekki svitaholur.