Beint í efni
Mínar síður





Sefitude

537873

445mg – 60 húðaðar töflur (þynnupakki)

Product information


Attachments

Short description

Sefitude hefur róandi og kvíðastillandi verkun. Lyfið er notað til að auðvelda svefn, bæta svefngæði og til að draga úr taugaspennu og kvíða. Sefitude þolist almennt vel, er ekki ávanabindandi né sljóvgandi.  Hægt er að nota Sefitude meðfram öðrum svefnmeðferðum til að styðja við góðar svefnvenjur. Virkni Sefitude fer stigvaxandi með notkun og því þarf að taka lyfið samfellt í 2-4 vikur áður en hámarksvirkni er náð.

Sefitude er skráð jurtalyf á Norðurlöndunum og inniheldur staðlaðan útdrátt úr rót garðabrúðu. Garðabrúða er viðurkennd lækningajurt og hafa bæði klínískar og forklínískar rannsóknir sýnt fram á virkni hennar. Sefitude nær hámarksvirkni við samfellda notkun í 2 – 4 vikur og vinnur því best á langvinnum vægum kvíða og svefntruflunum. Sökum þess að áhrifin byggjast upp yfir tíma er ekki ráðlagt að nota Sefitude sem bráðameðferð við kvíða. Lyfið þolist almennt vel og má nota frá 12 ára aldri. Fróðleikur um  Sefitude