Til baka

Natures Aid Krill Oil 500mg 60 perlur

Omega 3 í sinni hreinustu og öflugustu mynd, sótt í Suðurskautshafið sem er hreinasta hafsvæði veraldar. Sífellt fleiri rannsóknir leiða í ljós kosti þess að bæta Omega 3 fitusýrum inn í mataræði okkar og getur regluleg inntaka haft í för með sér hina ýmsu jákvæðu kosti á líkamsstarfsemi okkar.

4.996 kr.

vnr: 88025525

Það sem gerir krill olíuna sérstaka er að líkaminn á afar auðvelt með að nýta sér fitukeðjurnar í krillinu og ekkert eftirbragð er eftir inntöku. Krill blandast við vatn og er því talið að ekki sé ropað upp bragði eftir inntöku. Aðrar sambærilegar fiskolíur blandast ekki við vatn.

Sífellt fleiri rannsóknir leiða í ljós kosti þess að bæta Omega 3 fitusýrum inn í mataræði okkar og getur regluleg inntaka haft í för með sér hina ýmsu jákvæðu kosti á líkamsstarfsemi okkar.

Krill blandast við vatn og er því talið að ekki sé ropað upp bragði eftir inntöku.  Aðrar sambærilegar fiskolíur blandast ekki við vatn.

Hvað er krill?

Krill eða ljósáta er lítið krabbadýr sem lifir í efstu lögum sjávar. Suðurhafsljósátan hefur mikið vægi í vistkerfi Suðurhafana og fjöldi sjávardýra byggir tilveru sína beint og óbeint á þessu eina krabbadýri. Krill er neðst í fæðukeðjunni sem þýðir að krill olían er sú hreinasta sem finnst, en mengun eins og þungmálmar er að verða mikið vandamál í mörgum fisktegundum í dag. Suðurhafskrillið inniheldur náttúrulegt andoxunarefni sem heitir Astaxanthin og er það talið eitt það öflugasta sem völ er á. Vegna mikillar andoxunar frá Astaxanthin (rauði liturinn frá krabbadýrinu) hefur krill olían mikinn stöðugleika og er því með mikla vörn gegn þránun.

Krill olían er rík af EPA og DHA fitusýrum og nýtanleiki og frásogun er mun meiri sökum þess að olían inniheldur að auki fosfólípíð.

  • Án erfðabreyttra gervi- og litarefna.
  • Mjólkur-, glútens-, laktósa-, hnetu-, salt- og sykurlaust.

Superba er framleiðandinn af olíunni en World Wildlife Fondation staðfestir að Aker bio marine, sem veiða og framleiða Superba krill olíuna, stunda vistvænar og sjálfbærar veiðar. Aðferðin sem notuð er við veiðarnar er mjög sérhæfð, trollið er í kafi allan tímann og stöðugt flæði af sjó fer í gegn og Krillið fer beint í vinnslu tanka. Með þessari vinnslu er tryggð hámarks nýting á næringarefnum. Mikil áhersla er lögð á að það sé engin meðafli og með þessari aðferð veiðist bara Krill, röskun á öðru lífríki þarna sem er viðkvæmt er lítil sem enginn.

 

2 perlur á dag með vatni.