Lyf fyrir menn

Xyloproct - Endaþarmssmyrsli
Lausasölulyf
ATC Flokkur: C05AA01
ATC Heiti: Hydrocortisonum
Norrænt Vörunúmer: 059493
Markaðsleyfishafi: Aspen Pharma Trading Limited, Regulatory Affairs Department,
Skráningardagsetning: 01.11.2024
Magn
Xyloproct endaþarmssmyrsli og endaþarmsstílar innihalda tvö virk efni (lídókaín og hýdrókortisón)
sem verka á ólíkan hátt.
Hýdrókortisón dregur úr bólgu. Lídókaín dregur úr verkjum og kláða.
Xyloproct er notað til meðferðar við gyllinæð og yfirborðslægri ertingu í endaþarmi hjá fullorðnum.
sem verka á ólíkan hátt.
Hýdrókortisón dregur úr bólgu. Lídókaín dregur úr verkjum og kláða.
Xyloproct er notað til meðferðar við gyllinæð og yfirborðslægri ertingu í endaþarmi hjá fullorðnum.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Xyloproct inniheldur Endaþarmssmyrsli:
- Virka innihaldsefnið er lídókaín 50 mg, hýdrókortisónasetat 2,5 mg.
- Önnur innihaldsefni eru áltvíasetat, zinkoxíð, cetýlalkóhól, sterýlalkóhól, makrógól og vatn.
Endaþarmsstílar:
- Virka innihaldsefnið er lídókaín 60 mg, hýdrókortisónasetat 5 mg.
- Önnur innihaldsefni eru áltvíasetat, zinkoxíð, mettuð fita.
Lýsing á útliti Xyloproct og pakkningastærðir
Endaþarmssmyrsli:
Hvítt eða gulleitt einsleitt krem.
Pakkningastærð: Túpa með 20 g.
Endaþarmsstílar:
Hvítir eða gulleitir stílar.
Pakkningastærðir: Askja með 10 eða 50 endaþarmsstílum (lyfseðilsskylt).
Markaðsleyfishafi
Aspen Pharma Trading Limited
3016 Lake Drive
Citywest Business Campus
Dublin 24
Írland
Framleiðandi (endaþarmssmyrsli):
Aspen Bad Oldesloe GmbH
Industriestrasse 32-36
23843 Bad Oldesloe
Þýskaland
Framleiðandi (endaþarmsstílar):
Recipharm Karlskoga AB
Karlskoga
Svíþjóð
Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í ágúst 2024.