Lyf fyrir menn

Xylocain - Smyrsli
Lausasölulyf
ATC Flokkur: D04AB01
ATC Heiti: Lidocainum
Norrænt Vörunúmer: 513309
Markaðsleyfishafi: Aspen Pharma Trading Limited
Skráningardagsetning: 01.09.2003
Magn
• Xylocain smyrsli er staðdeyfilyf. Það verkar innan nokkura mínútna.
• Xylocain smyrsli má nota hjá fullorðnum og börnum í öllum aldurshópum.
• Xylocain smyrsli má nota:
Til að draga úr kláða og sársauka í húð, t.d. :
- Vegna sólbruna, skordýrabits eða minniháttar bruna og skráma.
- Vegna gyllinæðar og annarra kvilla við endaþarm.
• Tannlæknir getur notað Xylocain smyrsli til þess að deyfa góma fyrir inndælingu deyfingar og
tannhreinsun.
• Læknir getur notað Xylocain smyrsli til staðdeyfingar fyrir rannsóknir í munni, hálsi og
endaþarmi.
Verið getur að læknirinn hafi ávísað lyfinu við öðrum sjúkdómi eða í öðrum skömmtum en tiltekið er í
þessum fylgiseðli. Ávallt skal fylgja fyrirmælum læknis og leiðbeiningum á merkimiða frá lyfjabúð.

Pakkningar og aðrar upplýsingar
Xylocain smyrsli inniheldur - Virka innhaldsefnið: lídókaín.
- Önnur innihaldsefni: macrogol-efni, própýlenglýkól og hreinsað vatn.
Pakkningastærð
35 g (áltúpa)
Markaðsleyfishafi og framleiðandi
Markaðsleyfishafi
Aspen Pharma Trading Limited
3016 Lake Drive, Citywest Business Campus,
Dublin 24, Írland
Framleiðandi:
AstraZeneca AB,
SE 151 85 Södertälje,
Svíþjóð
eða
Recipharm Karlskoga AB,
Karlskoga,
Svíþjóð.
eða
Aspen Bad Oldesloe GmbH,
Industriestrasse 32-36,
23843 Bad Oldesloe,
Þýskaland
Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í september 2024.