Lyf fyrir menn

Vivelle dot - Forðaplástur
Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: G03CA03
ATC Heiti: Estradiolum
Norrænt Vörunúmer: 042173
Markaðsleyfishafi: Sandoz A/S
Skráningardagsetning: 01.04.2025
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Vivelle dot er kvenhormónauppbót. Það inniheldur kvenhormónið estrógen. Vivelle dot er notað hjá
konum sem komnar eru yfir tíðahvörf og að minnsta kosti 12 mánuðir eru frá síðustu náttúrulegu
tíðablæðingum.
Vivelle dot er forðaplástur sem festa skal á húðina.
Vivelle dot er notað:
Við einkennum sem koma fram eftir tíðahvörf
Við tíðahvörf dregur mikið úr myndun estrógens í líkama kvenna. Þetta getur haft í för með sér
einkenni eins og hitatilfinningu í andliti, á hálsi og bringu (hitasteypur). Vivelle dot dregur úr þessum
einkennum eftir tíðahvörf. Þér verður einungis ávísað Vivelle dot ef einkennin hafa veruleg hamlandi
áhrif á þitt daglega líf.
Til að koma í veg fyrir beinþynningu (á einungis við um Vivelle dot 50 míkrógrömm/24 klst.,
75 míkrógrömm/24 klst. og 100 míkrógrömm/24 klst.):
Eftir tíðahvörf getur styrkur beina minnkað hjá sumum konum (beinþynning). Þú skalt ræða alla
möguleika við lækninn.
Ef þú ert í aukinni hættu á beinbrotum vegna beinþynningar og meðferð með öðrum lyfjum hentar þér
ekki, er hægt að nota Vivelle dot til að koma í veg fyrir beinþynningu eftir tíðahvörf.
Verið getur að læknirinn hafi ávísað lyfinu við öðrum sjúkdómi eða í öðrum skömmtum en tiltekið er í
þessum fylgiseðli. Ávallt skal fylgja fyrirmælum læknis og leiðbeiningum á merkimiða frá lyfjabúð.

Pakkningar og aðrar upplýsingar
Vivelle dot inniheldur Vivelle dot er í fimm styrkleikum, sem hver inniheldur og losar mismunandi magn af virka efninu
estradíóli:
Vivelle dot 25 míkrógrömm/24 klst.: 2,5 cm
forðaplástur. Hver plástur inniheldur 0,39 mg af
estradíóli (sem hemihýdrat) og losar um 25 míkrógrömm af
estradíóli á 24 klst.
Vivelle dot 37,5 míkrógrömm/24 klst.: 3,75 cm
forðaplástur. Hver plástur inniheldur 0,585 mg af
estradíóli (sem hemihýdrat) og losar um 37,5 míkrógrömm
af estradíóli á 24 klst.
Vivelle dot 50 míkrógrömm/24 klst.: 5,0 cm
forðaplástur. Hver plástur inniheldur 0,78 mg af
estradíóli (sem hemihýdrat) og losar um 50 míkrógrömm af
estradíóli á 24 klst.
Vivelle dot 75 míkrógrömm/24 klst.: 7,5 cm
forðaplástur. Hver plástur inniheldur 1,17 mg af
estradíóli (sem hemihýdrat) og losar um 75 míkrógrömm af
estradíóli á 24 klst.
Vivelle dot 100 míkrógrömm/24 klst.: 10 cm
forðaplástur. Hver plástur inniheldur 1,56 mg af
estradíóli (sem hemihýdrat) og losar um 100 míkrógrömm af
estradíóli á 24 klst.
Önnur innihaldsefni:
Límlag: Akryllím, silikonlím, oleylalkóhól, tvíprópýlenglýkól og povidon (E1201).
Bakhlið: lag úr etýlen/vinylacetat samfjölliðu og vinylidenklóríð/metýlacrýlat samfjölliðu.
Hlífðarhimna (fjarlægð fyrir notkun): Flúorfjölliðuhúðuð pólýesterþynna.
Lýsing á útliti Vivelle dot og pakkningastærðir
Vivelle dot er rétthyrndur forðaplástur með ávölum hornum, gerður úr límlagi sem er næmt fyrir
þrýstingi og inniheldur estradíól, með hálfgegnsærri bakhlið úr fjölliðu á annarri hliðinni og
hlífðarhimnu á hinni hliðinni.
Allir styrkleikar eru í pakkningum með 2, 8, 24 og 26 forðaplástrum. Ekki er víst að allir styrkleikar
og pakkningastærðir séu markaðssett.
Markaðsleyfishafi
Sandoz A/S
Edvard Thomsens Vej 14
2300 København S
Danmörk
Framleiðandi
Lek Pharmaceuticals d.d.
Verovškova ulica 57
1526 Ljubljana
Slóvenía
Novartis Farmacéutica, S.A.
Gran Via de les Corts Catalanes, 764
08013 Barcelona
Spánn
Novartis Pharma GmbH
Roonstrasse 25
D-90429 Nürnberg
Þýskaland
Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í september 2025
Upplýsingar sem hægt er að nálgast annars staðar
Ítarlegar upplýsingar um lyfið eru birtar á vef Lyfjastofnunar, www.serlyfjaskra.is.