Lyf fyrir menn

Virofob - Filmuhúðuð tafla
Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: J05AF07
ATC Heiti: Tenofovir disoproxil
Norrænt Vörunúmer: 470315
Markaðsleyfishafi: Zentiva k.s.
Skráningardagsetning: 01.01.2017
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Virofob inniheldur - Virka innihaldsefnið er tenófóvír. Hver Virofob tafla inniheldur 245 mg af tenófóvír
tvísóproxíl (sem súkkinat).
- Önnur innihaldsefni eru: laktósa, örkristallaður sellulósi, forhleypt sterkja, kroskarmellósi
natríum og magnesíum sterat sem eru meginuppistaðan í töflukjarnanum og indígótín-karmín
,,aluminium lake“ (E132), títantvíoxíð (E171), pólývínýlalkóhól, makrógól 3350 og talkúm sem
eru meginuppistaða töfluhúðarinnar. Sjá kafla 2 „Virofob inniheldur laktósa og natríum“.
Lýsing á útliti Virofob og pakkningastærðir
Virofob 245 mg filmuhúðaðar töflur eru ljósbláar, möndlulaga, u.þ.b. 17,0 mm x 10,5 mm að stærð.
Virofob 245 mg filmuhúðaðar töflur fást í lyfjaglösum sem innihalda 30 töflur. Hvert lyfjaglas
inniheldur rakadrægt kísilgel sem verður að geyma í lyfjaglasinu til þess að vernda töflurnar.
Rakadræga kísilgelið er í sérstöku hylki og það má ekki gleypa.
Eftirtaldar pakkningastærðir eru fáanlegar:
30 (1 x 30) filmuhúðaðar töflur
90 (3 x 30) filmuhúðaðar töflur
Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.
Markaðsleyfishafi og framleiðandi
Markaðsleyfishafi
Zentiva, k.s.
U kabelovny 130,
Prag 10, 102 37
Tékkland
Framleiðandi
Remedica Ltd
Aharnon Street
Limassol Industrial Estate
3056 Limassol
Kýpur
Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í maí 2024.