Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Valtrex - Filmuhúðuð tafla
Lyf fyrir menn
undefined-image-placeholder

Valtrex - Filmuhúðuð tafla

Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: J05AB11
ATC Heiti: Valaciclovirum
Norrænt Vörunúmer: 374397
Markaðsleyfishafi: GlaxoSmithKline Pharma A/S
Skráningardagsetning: 01.01.2003
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Valtrex tilheyrir flokki lyfja er kallast veirusýkingalyf. Það virkar með því að drepa eða stöðva vöxt
veira sem kallast herpes simplex, hlaupabólu-ristilveirur (varicella zoster) og cýtómegalóveirur.

Valtrex er hægt að nota til að:
• meðhöndla ristil (hjá fullorðnum)
• meðhöndla sýkingar af völdum herpex simplex í húð og kynfæraherpes (hjá fullorðnum og
unglingum eldri en 12 ára). Það er einnig notað til að fyrirbyggja endurkomu þessara sýkinga.
• meðhöndla frunsur (hjá fullorðnum og unglingum eldri en 12 ára)
• fyrirbyggja cýtómegalóveirusýkingu eftir líffæraígræðslu (hjá fullorðnum og unglingum eldri en
12 ára)
• meðhöndla og fyrirbyggja endurteknar augnsýkingar af völdum herpes simplex (hjá fullorðnum
og unglingum eldri en 12 ára).
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Valtrex inniheldur

• Virka efnið er valacíklóvír. Hver tafla inniheldur 250 mg eða 500 mg af valacíklóvíri (sem
valacíklóvírhýdróklóríð).

Önnur innihaldsefni eru:

Töflukjarni

Örkristallaður sellulósi
Krospóvídón
Póvídón
Magnesíumsterat
Vatnsfrí kísilkvoða

Filmuhúð
Hýprómellósi
Títantvíoxíð
Makrógól 400
Pólýsorbat 80 (eingöngu 500 mg töflur)
Carnaubavax

Lýsing á útliti Valtrex og pakkningastærðir

Valtrex töflur eru í pólývínýlklóríð/ál-þynnum.

Valtrex 250 mg töflur fást í öskjum sem innihalda 60 filmuhúðaðar töflur. Þær eru hvítar og merktar
„GX CE7“ á annarri hliðinni.

Valtrex 500 mg töflur fást í öskjum sem innihalda 10, 30, 42 eða 112 filmuhúðaðar töflur.
Þær eru hvítar og merktar „GX CF1“ á annarri hliðinni.

Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar

Markaðsleyfishafi og framleiðandi

Markaðsleyfishafi:
GlaxoSmithKline Pharma A/S
Delta Park 37
2665 Vallensbæk Strand
Danmörk

Framleiðandi:
Glaxo Wellcome S.A.
Aranda de Duero (Burgos)
Spánn

Umboð á Íslandi:
Vistor hf., sími: 535-7000


Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í júní 2025.