Lyf fyrir menn

Valsartan Krka - Filmuhúðuð tafla
Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: C09CA03
ATC Heiti: Valsartanum
Norrænt Vörunúmer: 135062
Markaðsleyfishafi: Krka d.d. Novo mesto
Skráningardagsetning: 01.08.2018
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Valsartan Krka inniheldur - Virka innihaldsefnið er valsartan. Hver filmuhúðuð tafla inniheldur 40 mg, 80 mg eða 160 mg
af valsartani.
- Önnur innihaldsefni í töflukjarnanum eru laktósa einhýdrat, örkristallaður sellulósi, póvidón,
natríum kroskarmellósi, vatnsfrí kísilkvoða og magnesíum sterat.
- Önnur innihaldsefni í filmuhúðinni eru hýprómellósi, títan tvíoxíð (E171), makrógól 4000, gult
járnoxíð (E172) (aðeins 40 mg og 160 mg töflur) og rautt járnoxíð (E172) (aðeins 80 mg og
160 mg töflur).
- Sjá kafla 2 „Valsartan Krka inniheldur mjólkursykur (laktósa) og natríum“
Lýsing á útliti Valsartan Krka og pakkningastærðir
40 mg filmuhúðaðar töflur eru gulbrúnar, kringlóttar, lítillega tvíkúptar, filmuhúðaðar töflur með
deiliskoru á annarri hliðinni.
80 mg filmuhúðaðar töflur eru bleikar, kringlóttar, tvíkúptar, filmuhúðaðar töflur með deiliskoru á
annarri hliðinni.
160 mg filmuhúðaðar töflur eru gulbrúnar, sporöskjulaga, tvíkúptar, filmuhúðaðar töflur með
deiliskoru á annarri hliðinni.
Töflum allra þriggja styrkleika má skipta í jafna skammta.
Fyrir hvern styrkleika eru öskjur með 7, 10, 14, 28, 30, 50, 56, 60, 84, 90, 98, 120 og
180 filmuhúðuðum töflum í þynnupakkningum fáanlegar.
Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.
Markaðsleyfishafi og framleiðandi
Markaðsleyfishafi
KRKA, d.d., Novo mesto
Šmarješka cesta 6
8501 Novo mesto
Slóvenía
Framleiðandi
KRKA, d.d., Novo mesto, Šmarješka cesta 6, 8000 Novo mesto, Slóvenía
KRKA-POLSKA Sp. z o.o., ul. Równoległa 5, 02-235 Warszawa, Pólland
Vinsamlega hafið samband við fulltrúa markaðsleyfishafa ef óskað er frekari upplýsinga um lyfið
LYFIS ehf.
Sími: 534 3500
Netfang: lyfis@lyfis.is
Þessi fylgiseðill var síðast samþykktur í október 2025.