Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Valsartan Jubilant - Filmuhúðuð tafla
Lyf fyrir menn
undefined-image-placeholder

Valsartan Jubilant - Filmuhúðuð tafla

Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: C09CA03
ATC Heiti: Valsartanum
Norrænt Vörunúmer: 160195
Markaðsleyfishafi: Jubilant Pharmaceuticals nv
Skráningardagsetning: 01.11.2018
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Valsartan Jubilant tilheyrir flokki lyfja sem kallast angíótensín II blokkar, sem hjálpa til við að hafa
stjórn á háum blóðþrýstingi. Angíótensín II er efni í líkamanum sem veldur æðasamdrætti og þar með
hækkuðum blóðþrýstingi. Valsartan Jubilant verkar með því að hamla áhrif angíótensín II. Afleiðing
þess er að það slaknar á æðunum og blóðþrýstingurinn lækkar.

Valsartan Jubilant filmuhúðaðar töflur má nota við þremur mismunandi ábendingum:
- til meðhöndlunar á háum blóðþrýstingi hjá fullorðnum og börnum og unglingum, 6 til
18 ára. Hár blóðþrýstingur eykur álag á hjarta og slagæðar. Ef hann er ekki meðhöndlaður getur
hann skemmt æðar í heila, hjarta og nýrum og leitt til slags, hjartabilunar eða nýrnabilunar. Hár
blóðþrýstingur eykur hættu á hjartaáfalli. Með því að lækka blóðþrýsting í eðlilegt gildi dregur
úr hættu á þessum sjúkdómum.
- til meðhöndlunar eftir nýlegt hjartaáfall (hjartadrep) hjá fullorðnum sjúklingum.
„Nýlegt” á í þessu tilfelli við á bilinu 12 klukkustundir til 10 dagar.
- til meðhöndlunar á hjartabilun með einkennum hjá fullorðnum sjúklingum. Nota má
Valsartan Jubilant til meðferðar við hjartabilun með einkennum hjá fullorðnum sjúklingum.
Valsartan Jubilant er notað þegar ekki er hægt að nota lyfjaflokk sem nefnist ACE-hemlar
(Angiotensin Converting Enzyme inhibitors), (lyf notuð til meðhöndlunar á hjartabilun) en
einnig má nota það til viðbótar ACE-hemlum þegar ekki er hægt að nota önnur lyf við
hjartabilun. Einkenni hjartabilunar eru, meðal annars, mæði og bólga á fótum og fótleggjum
vegna vökvasöfnunar. Það er vegna þess að hjartavöðvinn getur ekki dælt blóðinu út í líkamann
af nógu miklum krafti.

Verið getur að læknirinn hafi ávísað lyfinu við öðrum sjúkdómi eða í öðrum skömmtum en tiltekið er í
þessum fylgiseðli. Ávallt skal fylgja fyrirmælum læknis og leiðbeiningum á merkimiða frá lyfjabúð.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Valsartan Jubilant inniheldur
• Virka innihaldsefnið er valsartan. Hver filmuhúðuð tafla inniheldur 80 mg eða 160 mg af
valsartani.
• Önnur innihaldsefni í töflukjarnanum eru örkristallaður sellulósi (E460), krospóvídón (E1202),
kísill, magnesíumsterat (E470b), vatnsfrír laktósi.
• Önnur innihaldsefni í filmuhúðinni eru hýprómellósi (E464), títantvíoxíð (E171), makrógól, gult
járnoxíð (E172) og rautt járnoxíð (E172) (eingöngu Valsartan Jubilant 80mg).

Lýsing á útliti Valsartan Jubilant og pakkningastærðir

Valsartan Jubilant 80 mg filmuhúðaðar töflur eru ferskjulitaðar, kringlóttar, tvíkúptar filmuhúðaðar
töflur með deiliskoru á annarri hlið og merkt „80“ og merkt „J“ á hinni hlíðinni.
Deiliskoran er eingöngu svo hægt sé að skipta töflunni svo auðveldara sé að kyngja henni en ekki til
að skipta henni í jafna skammta.

Valsartan Jubilant 160 mg filmuhúðaðar töflur eru gular, sporöskjulega, tvíkúptar filmuhúðaðar töflur
með deiliskoru á annarri hlið og merkt „160“ og merkt „J“ á hinni hlíðinni. Deiliskoran er eingöngu
svo hægt sé að skipta töflunni svo auðveldara sé að kyngja henni en ekki til að skipta henni í jafna
skammta.

Þynnupakkning með álþynnum með 7, 14, 28, 30, 56, 90, 98 filmuhúðuðum töflum.

Ekki víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.

Markaðsleyfishafi og framleiðandi
Jubilant Pharmaceuticals nv
Guldensporenpark 22 – Block C
9280 Merelbeke
Belgíu

Framleiðandi
PSI supply nv
Axxes Business Park
Guldensporenpark 22 – Block C
9820 Merelbeke
Belgía

Vinsamlega hafið samband við fulltrúa markaðsleyfishafa ef óskað er frekari upplýsinga um lyfið.

Þetta lyf hefur markaðsleyfi í löndum Evrópska efnahagssvæðisins undir eftirfarandi heitum:

Svíþjóð: Valsartan Jubilant
Ítalía: Kerval
Holland: Valsartan Jubilant

Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í september 2025.