Lyf fyrir menn

Valaciclovir Bluefish - Filmuhúðuð tafla
Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: J05AB11
ATC Heiti: Valaciclovirum
Norrænt Vörunúmer: 152675
Markaðsleyfishafi: Bluefish Pharmaceuticals AB
Skráningardagsetning: 01.06.2014
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Valaciclovir Bluefish tilheyrir flokki lyfja er kallast veirusýkingalyf. Það virkar með því að drepa eða
stöðva vöxt veira sem kallast herpes simplex, hlaupabólu-ristilveira (varicella-zoster) og
cýtómegalóveira.
Valaciclovir Bluefish er hægt að nota til að:
- meðhöndla ristil (hjá fullorðnum).
- meðhöndla sýkingar af völdum herpex simplex í húð og kynfæraherpes (hjá fullorðnum og
unglingum eldri en 12 ára). Það er einnig notað til að fyrirbyggja endurkomu þessara sýkinga.
- meðhöndla frunsur (hjá fullorðnum og unglingum eldri en 12 ára).
- fyrirbyggja cýtómegalóveirusýkingu eftir líffæraígræðslu (hjá fullorðnum og unglingum eldri en
12 ára).
- meðhöndla og fyrirbyggja augnsýkingar af völdum herpes simplex.

Pakkningar og aðrar upplýsingar
Valaciclovir Bluefish inniheldur - Virka efnið er valaciclovir. Hver tafla inniheldur 500 mg af valacicloviri (sem valaciclovir
hýdróklóríðeinhýdrat).
- Önnur innihaldsefni eru magnesíumsterat, póvídón, krospóvídón, örkristallaður sellulósi, títan-
tvíoxíð, hýprómellósi, makrógól 400 og pólýsorbat 80.
Lýsing á útliti Valaciclovir Bluefish og pakkningastærðir
Valaciclovir Bluefish 500 mg töflur eru hvítar, hylkislaga, tvíkúptar filmuhúðaðar töflur, merktar með
„V“ á annarri hliðinni og „500“ á hinni hliðinni.
Lyfið er fáanlegt í þynnupakkningum sem innihalda 4, 6, 10, 30, 42, 80, 84, 90, 112 töflur.
Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.
Markaðsleyfishafi
Bluefish Pharmaceuticals AB, P.O. Box 49013, 100 28 Stockholm, Svíþjóð
Framleiðandi
Bluefish Pharmaceuticals AB, Gävlegatan 22, 113 30 Stockholm, Svíþjóð
Pharmadox Healthcare Ltd., KW20A Corradino Industrial Estate, Paola, PLA 3000, Malta
Vinsamlega hafið samband við fulltrúa markaðsleyfishafa ef óskað er frekari upplýsinga um lyfið
Artasan ehf., sími: 414-9200, netfang: artasan@artasan.is
Þetta lyf hefur markaðsleyfi í löndum Evrópska efnahagssvæðisins undir eftirfarandi heitum:
Austurríki: Valaciclovir Bluefish 500 mg Filmtabletten
Danmörk: Valaciclovir Bluefish
Finnland: Valaciclovir Bluefish 500 mg tabletti, kalvopäällysteinen/
Valaciclovir Bluefish 500 mg filmdragerade tabletter
Frakkland: Valaciclovir Bluefish 500 mg comprimé pelliculé
Írland: Valaciclovir Bluefish 500 mg film-coated Tablets
Ísland: Valaciclovir Bluefish 500 mg filmuhúðaðar töflur
Portúgal: Valaciclovir Bluefish 500 mg, comprimidos revestidos por película
Svíþjóð: Valaciclovir Bluefish 500 mg filmdragerade tabletter
Þýskaland: Valaciclovir Bluefish 500 mg Filmtablettem
Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í febrúar 2023.