Lyf fyrir menn

Utrogestan - Mjúkt hylki
Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: G03DA04
ATC Heiti: Progesteronum
Norrænt Vörunúmer: 504320
Markaðsleyfishafi: Besins Healthcare Ireland Limited
Skráningardagsetning: 01.02.2025
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Utrogestan inniheldur
Þetta lyf inniheldur prógesterón sem er náttúrulegt kvenhormón sem er framleitt í líkamanum. Þetta lyf
verkar með því að stilla hormónajafnvægi innan líkamans. Lyfið er hormónameðferð með prógestógeni.
Við hverju það er notað
Þetta lyf er notað ef þú finnur fyrir kvillum vegna skorts á prógesteróni í líkamanum. Læknirinn mun
segja þér að taka þetta lyf ef eitthvað af eftirfarandi á við:
a) Þú ert með prógesterónskort
Gildi prógesteróns sem eggjastokkar framleiða (meðan á gulbússtigi stendur) eru undir eðlilegum
mörkum. Í slíkum tilvikum er hægt að nota lyfið til að meðhöndla óreglulegar tíðablæðingar.
b) Tíðablæðingar stöðvast varanlega (tíðahvörf)
Viðbótarnotkun í hormónameðferð með estrógeni hjá konum í tíðahvörfum sem eru með leg.

Pakkningar og aðrar upplýsingar
Utrogestan inniheldur • Virka innihaldsefnið er prógesterón. Það er í míkrómöluðu formi sem jafngildir 100 mg eða 200 mg
í hverju mjúku hylki.
• Önnur innihaldsefni eru: sojabaunalesitín, sólblómaolía, títanoxíð (E171), gelatín, glýserín.
Lýsing á útliti Utrogestan og pakkningastærðir
• Utrogestan 100 mg kemur í pakkningum með 30 eða 90 mjúkum hylkjum sem ætluð eru til inntöku
og er pakkað í þynnupakkningar.
• Utrogestan 200 mg kemur í pakkningum með 15, 30, 45 eða 90 mjúkum hylkjum sem ætluð eru til
inntöku og er pakkað í þynnupakkningar.
• Utrogestan 100 mg eru kringlótt, gulleit mjúk hylki sem innihalda hvítleita olíudreifu.
• Utrogestan 200 mg eru egglaga, gulleit, mjúk hylki sem innihalda hvítleita olíudreifu.
Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.
Markaðsleyfishafi
Besins Healthcare Ireland Ltd,
Plaza 4, Level 4 Custom House Plaza,
Harbourmaster Place, International Financial Services Centre
Dublin 1,
D01 A9N3
Írland
Umboðsaðili
Laboratoires Besins International
13 rue Périer, Montrouge,
92120, Frakkland
Framleiðandi
CYNDEA PHARMA S.L.
Polígono Industrial Emiliano Revilla Sanz
Avenida de Ágreda, 31
42110 Ólvega (Soria)
Spánn
eða
BESINS MANUFACTURING ESPAÑA
Polígono Industrial El Pitarco, parcela nr. 4
50450 Muel (Zaragoza)
Spánn
Þetta lyf hefur markaðsleyfi í löndum Evrópska efnahagssvæðisins undir eftirfarandi heitum:
Belgía Progestérone BESINS 100 mg, capsule molles
Progestérone BESINS 200 mg, capsule molles
Eistland Utrogestan
Holland Progesteron Besins 100 mg zacht capsules
Progesteron Besins 200 mg zacht capsules
Ísland Utrogestan 100 mg, mjúkt hylki
Utrogestan 200 mg, mjúkt hylki
Lettland Utrogestan 100 mg mīkstās kapsulas
Litháen Utrogestan 100 mg minkštosios kapsulės
Lúxemborg Progestérone BESINS 100 mg, capsule molles
Progestérone BESINS 200 mg, capsule molles
Noregur Utrogestan 100 mg, myk kapsel
Utrogestan 200 mg, myk kapsel
Pólland Progesterone Besins 100 mg, kapsułki miękkie
Progesterone Besins 200 mg, kapsułki miękkie
Þýskaland Utrogest 100 mg Weichkapseln
Utrogest 200 mg Weichkapseln
Spánn Lugesteron 200 mg cápsulas blandas
Svíþjóð Utrogestan 100 mg, mjuk kapsel
Utrogestan 200 mg, mjuk kapsel
Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í september 2025.