Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Túfen - Saft
Lyf fyrir menn
undefined-image-placeholder

Túfen - Saft

Lausasölulyf
ATC Flokkur: R05CA03
ATC Heiti: guaifenesin
Norrænt Vörunúmer: 059144
Markaðsleyfishafi: Laboratoria Qualiphar
Skráningardagsetning: 01.03.2022
Magn
Túfen 13,33 mg/ml saft inniheldur guaifenesín og er slímlosandi lyf. Það er ætlað til notkunar við
einkennum sýkinga í efri hluta öndunarfæra og hjálpar til við að létta á djúpum hósta með því að losa
slím sem auðveldar að hósta því upp og opna þannig öndunarveginn.
Leitið til læknis ef sjúkdómseinkenni versna eða batna ekki innan 7 daga.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Túfen inniheldur

- Virka innihaldsefnið er guaifenesín 13,33 mg/ml.
- Önnur innihaldsefni eru methýl parahýdroxýbenzóat (E218), propýl parahýdroxýbenzóat
(E216), etanól 96% (v/v), levómentól, cineól, natríum sakkarín (E954), propýlenglýkól (E1520),
súkralósi (E955), asesúlfam kalíum (E950), stevía (E960), patentblár (E131), kínólíngult
(E104), sorbitóllausn 70% (E420), hreinsað vatn.

Lesið einnig í kafla 2 „Túfen inniheldur“.

Lýsing á útliti Túfen og pakkningastærðir
Túfen er græn saft sem fæst í 180 ml glerglasi með barnaöryggisloki ásamt mæliglasi með
mælikvarða. Mælikvarðinn sem er fyrir 7,5 eða 15 ml skal notaður til þess að mæla nákvæmt magn.

Markaðsleyfishafi og framleiðandi
Laboratoria QUALIPHAR N.V./S.A.
Rijksweg 9
2880 BORNEM
Belgía

Þetta lyf hefur markaðsleyfi í löndum Evrópska efnahagssvæðisins undir eftirfarandi heitum:

Lúxemborg Toularynx Guaifenesine
Belgía Toularynx Guaifenesine

Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í nóvember 2021.