Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Treo Hindbær - Freyðitafla
Lyf fyrir menn
undefined-image-placeholder

Treo Hindbær - Freyðitafla

Lausasölulyf
ATC Flokkur: N02BA51
ATC Heiti: Acidum acetylsalicylicum í blöndum þó ekki með geðlyfjum
Norrænt Vörunúmer: 581474
Markaðsleyfishafi: Cooper Consumer Health B.V.
Skráningardagsetning: 01.06.2020
Magn
Treo Hindbær er lyf við verkjum.
Þú getur notað Treo Hindbær við vægum verkjum, t.d. höfuðverk, vöðva- og liðverkjum, tíðaverkjum
og tannpínu. Þú getur einnig notað Treo Hindbær við mígreni.
Leitið til læknis ef sjúkdómseinkenni versna eða lagast ekki.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Treo Hindbær inniheldur:

- Virk innihaldsefni: 1 freyðitafla inniheldur 500 mg af asetýlsalisýlsýru og 50 mg af koffíni.
- Önnur innihaldsefni: sítrónusýra, natríumhýdrógenkarbónat, natríumkarbónat,
natríumtvíhýdrógensítrat, natríumsítrat, mannitól (E421), natríumdókusat, póvidón, simeticon,
hindberjabragðefni (inniheldur sorbitól (E420) og maltódextrín).

Lýsing á útliti Treo Hindbær og pakkningastærðir
Útlit
Treo Hindbær eru hvítar, kringlóttar og sléttar freyðitöflur.

Pakkningastærðir
Treo Hindbær er fáanlegt í pakkningastærðum með 10, 20 freyðitöflum eða 60 (3x20) freyðitöflum.
Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.

Markaðsleyfishafi og framleiðandi
Markaðsleyfishafi
Cooper Consumer Health B.V.
Verrijn Stuartweg 60
1112AX Diemen
Holland

Framleiðandi
HERMES PHARMA GmbH
Hans-Urmiller-Ring 52

82515 Wolfratshausen,
Þýskaland

Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í desember 2025.